breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar. Ég vil bara nefna það hér í upphafi að það er ákveðinn styrkleiki að viðurkenna þegar menn hafa haft rangt fyrir sér. Ég veit að kollegar mínir í flokknum — ég held að enginn sé hlynntur kílómetragjaldinu sem er í flokknum. En menn geta gert mistök og það skiptir svo miklu máli að læra af þeim og breyta rétt. En hvernig reiknar maður þetta út? Þá geri ég ráð fyrir að hv. þingmaður sé að spyrja hvernig menn reikna kílómetragjaldið út, ég ætla að taka það sem útgangspunkt. Ég ek á frekar stórum bíl og hann er breyttur, er á stærri dekkjum en þegar hann kom hingað til landsins. Ég er líka með GPS-mæli í bílnum sem mælir hraðann upp á metra á sekúndu sem er mun nákvæmari mælieining en kílómetrar á klukkustund. Ég sé það alveg að á mælinum í mælaborðinu hjá mér, hraðamælinum, er allt önnur tala en á GPS-mælinum. Þegar við erum farin að tala um að rukka samkvæmt hraðamælum í bílum þá eru þeir mjög misjafnir og ekki löggiltir og geta sýnt alls konar tölur svo að munað getur mörgum prósentum. Ef þú ekur mikið — í mínu tilfelli myndi ég hagnast á þessu að ákveðnu leyti vegna þess að raunhraði minn er meiri en mælirinn sýnir. Eða hagnast — nú er ég ekki alveg viss um hvort ég myndi hagnast en það er bara ótækt (Gripið fram í.) að nota þessa mæla í bílunum vegna þess að ekki er búið að taka þá út og þeir eru ekki löggiltir.