breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Þegar kemur að umræðu um skattahækkanir eða einhvers konar nýyrðum fyrir það orð þá væri hægt að eiga hér mjög spennandi og skemmtilegt samtal við hv. þingmann. En ég ætla að reyna að vera svolítið praktísk í spurningu minni því að ég er hér að lesa yfir meirihlutaálitið og er bara alveg áttavillt. Það kann vel að vera að sú sem hér stendur átti sig ekki nógu vel á þessu og ég átta mig á því að bandormur er oft flókinn. Það er verið að vísa í mörg lög. En bls. 4 og 5 í nefndaráliti meiri hlutans eru mjög torlæsar. Þá velti ég því fyrir mér að ef sú sem hér stendur, ég er reyndar ekki lögfræðingur að mennt en hef starfað hér í svolítinn tíma, á svona erfitt með að skilja þessar blaðsíður þá get ég ímyndað mér að flestir þarna úti séu kannski að velta einhverju sambærilegu fyrir sér. — Ég sé að hv. þingmaður er að ná í nefndarálitið. — Þetta varðar vörugjöldin. Fyrirsögnin á þessum kafla er: Breytingartillögur sem varða lög um vörugjöld af ökutækjum, eldsneyti o.fl. Nú skal geta þess að í frumvarpinu sem hér um ræðir, bandormi I eins og hann kallast á einhverri þingmálísku, er ekki breyting á lögum um vörugjöld af ökutækjum, þannig að þegar hér er verið að vísa í breytingar er varða 3. gr. laganna þá skil ég hreinlega ekki hvað verið er að vísa í. Eða þegar verið er að segja að í e-lið sé lagt til að 2. mgr. 3. gr. laganna falli brott. Ég finn engan e-lið í 3. gr. laganna í frumvarpinu sem um ræðir.
Ég spyr því hv. þingmann: Af hverju er líka verið að vísa í eitthvað sem kallað er minnisblað ráðuneytisins og breytingartillögur ráðuneytisins þegar verið er að vísa í greinar í nefndaráliti meiri hlutans?