157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:16]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Forseti. Þetta er kannski tæknilegri spurning en ég bjóst við. En það sem hér um ræðir, eins og hv. þingmaður þekkir, er að útfærslur á þessum breytingum á vörugjöldum lágu ekki fyrir þegar bandormurinn var kynntur fyrst. Þær liggja síðan fyrir, eins og fram hefur komið, í minnisblaði frá ráðuneytinu sem hefur auðvitað verið birt með öðrum skjölum í málinu. Það þarf því að lesa nefndarálit meiri hlutans með hliðsjón af því.