157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:17]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég ætla bara að leyfa mér að gera verulegar athugasemdir við það verklag sem hér er haft uppi. Þær útfærslur er varða breytingar á lögum um vörugjöld af ökutækjum, eldsneyti o.fl., eru ekki að fara í gegnum þrjár umræður á þessu þingi. Það er ekki neitt frumvarp frá ráðherra um þetta. Það er ekki einu sinni frumvarp frá nefndinni. Það eru breytingartillögur við 2. umræðu á bandorminum þar sem vísað er í — virðulegur forseti, ég man ekki eftir að hafa séð svona áður. Það er minnisblað hér frá ráðuneytinu sem við þekkjum og gjarnan koma ráðuneytin með tillögur að breytingum en hér er bara útfærð breytingartillaga, samt sem áður á bréfsefni Stjórnarráðsins, meira að segja greinargerð með breytingartillögunni. Ég skil ekki, virðulegur forseti, af hverju hæstv. ráðherra lagði þetta ekki fram sem frumvarp. Þá væri miklu skýrara að lesa nefndarálit meiri hlutans og vísa í einhverjar greinar vegna þess að það væri frumvarp sem hefði verið lagt hér fram og fengið þá þrjár umræður.

Virðulegur forseti. Ég velti því fyrir mér hvað lagaskrifstofa þingsins hefur sagt um þetta, hvort hér hafi ekki verið gerðar athugasemdir. Sú sem hér stendur hefur stundum lagt fram breytingartillögur á frumvörpum og stundum fengið athugasemdir um það og alls konar ráðleggingar. Ég trúi ekki öðru en að hér hafi í það minnsta verið sagt að það færi betur á því að ráðherra sjálfur, sem sendir frá sínu ráðuneyti minnisblað 17. október, hefði komið fram með frumvarp um þetta. Ég er því búin að býsnast yfir þessu núna og mun örugglega halda því áfram.

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður orðaði það einhvern veginn svo í ræðu sinni: „þegar áform um hækkun vörugjalda voru kynnt“. Ég spyr því: Hvenær voru áform um hækkun vörugjalda kynnt almenningi (Forseti hringir.) og hvernig áttu þeir sem skrifuðu umsagnir um bandorminn, eða hafa á þessu skoðun, að koma sjónarmiðum sínum á framfæri? Hvenær var þetta kynnt og með hvaða hætti?