157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:19]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er ekki með nákvæma dagsetningu á hreinu. Það var í október, það man ég. Það er örugglega mjög auðvelt fyrir hv. þingmann að finna nákvæmlega hvaða dag það var kynnt því það var auðvitað frétt um það. Síðan bárust fjölmargar umsagnir um þetta tiltekna atriði. Nefndin tók á móti fjölmörgum gestum, bílaleigum sem t.d. höfðu við þetta ýmislegt að athuga, bæði við þetta og kílómetragjaldið, þannig að ef við lítum á fjölda þeirra umsagna sem bárust nefndinni má glöggt sjá að fólk hafði sannarlega tíma til að lýsa skoðun sinni á þessum vörugjaldabreytingum, enda ber umfjöllun nefndarinnar öll þess merki.