157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:20]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir heiðarlega og góða ræðu hér og skýra yfirferð. Hann leyfir sér að koma inn á það hvort þetta samræmist loforðum stjórnarflokkanna, sérstaklega Viðreisnar, fyrir kosningar um að hækka ekki álögur eða skatta á venjulegt fólk, vinnandi fólk. Ég man nú ekki hvor flokkurinn sagði hvað, en það var annaðhvort. Hvað finnst honum um það að hjá þessari ríkisstjórn, þar sem Viðreisn er með Samfylkingunni í ríkisstjórn, séu mun meiri skattahækkanir en í sjö ára samstarfi Sjálfstæðisflokksins við Vinstri græn? Á einu bretti tekst Viðreisn að mæla fyrir fleiri skatta- og gjaldahækkunum en gerðist á öllu sjö ára samstarfstímabili Sjálfstæðisflokksins með Vinstri grænum. Er það loforðið sem Viðreisn gaf fyrir kosningar? Er hann stoltur af því að mæla hér með bandormi sem ég vil kalla skattorm vegna þess að þar eru svo miklar skattahækkanir? Og ástæðan fyrir öllum þessum gjaldahækkunum er einföld, það hefur varla verið um neina einustu hagræðingu að ræða hjá hinni samhentu verkstjórn. Hin samhenta verkstjórn sagðist ætla að hagræða hér en öll hagræðingin fer fram á tekjuhliðinni sem er það sem við ræðum hér í dag, hækkun tekna.