157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:22]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Er ég stoltur af þeirri vegferð sem við erum á? Já, það er ég. Það sem við lögðum mesta áherslu á í okkar kosningabaráttu, það sem við heyrðum að fólk vildi tala við okkur um, þegar við hittum fólk á förnum vegi í verslunarmiðstöðvum og í símtölum, voru vextir og verðbólga. Ástæðan fyrir því að vextir og verðbólga hafa farið úr böndunum hér á landi á síðustu árum er sú að ríkissjóður hefur verið rekinn með allt of miklum halla. Ég held, ef við förum aftur í söguna, að ein ástæða þess sé sú að við vorum líka með ríkisstjórn á síðasta kjörtímabili sem var samsett af nokkuð fjölbreyttum flokkum, annars vegar flokki sem vildi alls ekki skoða neinar tekjuaukandi aðgerðir, ekki hækka skatta, og síðan flokki sem vildi alls ekki skera niður og svo einhverjum einum flokki í viðbót. Til þess að ná tökum á verðbólgu þurfum við að ná tökum á afkomu ríkissjóðs. Ég er nokkuð stoltur af þeirri vegferð sem við erum á og við erum auðvitað að stefna í rétta átt með þessu frumvarpi. Það kallar á einhverjar tekjuaukandi aðgerðir, já. Það kallar líka á hagræðingu en heildarvegferðinni er ég stoltur af. Áður en við förum að tala um hvaða skatta við ætlum að lækka, hvaða byrðum við ætlum að létta, er nefnilega nauðsynlegt að ná tökum á verðbólgu. Reyndar er það þannig að fyrstu skref ríkisstjórnarinnar í þeim efnum eru nokkuð góð. Verðbólgan er að lækka, vextir eru að lækka og það er eitthvað sem við getum verið mjög ánægð með.