breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það væri áhugavert að sjá hvernig aðgerðir núverandi ríkisstjórnar eru að ná tökum á rekstri ríkissjóðs. Eins og ég kom inn á áðan er ástæðan fyrir því að við erum að tala um þessar gríðarlegu skatta- og gjaldahækkanir hér í dag sú að núverandi stjórnvöld hafa engan hemil á útgjaldaaukningunni. Útgjaldaaukningin er upp á 143 milljarða og hvergi í fjárlögunum, sem við erum nýbúin að fjalla um hér og greiða atkvæði um eftir 2. umræðu, má sjá neitt um það að verið sé að hagræða eða nýta fjármunina betur. Þau teikn sem við sjáum á lofti — fyrstu afrek núverandi ríkisstjórnar, sem ætlaði heldur betur að taka til í ríkisfjármálunum, voru að frysta vaxtalækkunarferlið. Hvenær byrjaði verðbólgan að lækka og hvenær byrjuðu vextirnir að lækka aftur? Jú, út af áföllum í atvinnulífinu. Hér varð aflasamdráttur, hér féll flugfélag, hér lokuðu stóriðjuverksmiðjur, hér komu tollar og það varð samdráttur í ferðaþjónustu. Það er ástæðan fyrir því að verðbólgan og vextirnir fóru að lækka aftur, ekki það sem ríkisstjórnin er að gera, sem er að auka útgjöldin og hækka álögurnar. Hvernig eiga þessar gjaldahækkanir hér í dag að hjálpa atvinnulífinu í þeim áskorunum sem við erum að takast á við?