breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Já, það er rétt að verðbólgan er að lækka og vextir eru að lækka. Þingmaðurinn nefnir alltaf krónutöluhækkun eða umfang í rekstri ríkissjóðs, hvort sem er á tekju- eða gjaldahlið. Ef það væri eini mælikvarðinn væru nánast allar ríkisstjórnir landsins frá upphafi skattahækkunarstjórnir vegna þess að auðvitað hækka þessar tölur alltaf. Eini mælikvarðinn sem er skynsamlegur til lengdar er auðvitað hlutfall þessara talna af vergri landsframleiðslu og það er ekki hækkun þegar að því kemur í þessu tilviki. Báknið sem slíkt er ekki að stækka.
Mig langar síðan að nefna það hér í lokin, vegna þess að alltaf er talað um skattahækkanir og hverju við höfum lofað og hverju ekki: Ef ég stæði hér og væri að boða það að hækka tekjuskatt á einstaklinga, hækka virðisaukaskatt, hækka einhverja þannig skatta, mætti sannarlega tala með þeim hætti að verið væri að hækka almenna skatta. En það er engin hækkun hér á almennum sköttum, þessum stóru tekjupóstum sem við erum alltaf að tala um. Þvert á móti, eins og ég segi, erum við að stuðla að því að skattur á tekjur fyrirtækja, sem Sjálfstæðisflokkurinn hækkaði á síðasta ári, muni lækka á næsta ári.