157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:28]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S):

Virðulegur forseti. Við fjöllum hér um tekjuöflunarfrumvörp ríkisstjórnarinnar, svokallaðan bandorm, en það væri kannski réttnefni að tala um skattorm þar sem hér er röð skatta- og gjaldahækkana sem einhver þarf jú að borga. Hér eru lögð fram fjárlög þar sem útgjöldum ríkissjóðs er forgangsraðað og fyrir þessum útgjöldum þarf að afla tekna. Það frumvarp sem við ræðum hér í dag er einmitt það frumvarp, eitt af þeim, sem sér um að afla þessara tekna. Eftir því sem það gengur betur að hafa hemil á útgjöldum ríkissjóðs, eftir því sem það gengur betur að fara betur með skattfé almennings og forgangsraða fjármunum ríkissjóðs á réttan hátt, þeim mun betur sem því verkefni miðar áfram, því minni þrýstingur er hér hjá okkur í tekjuöflunarfrumvörpunum um hærri gjöld og skatta. Þetta spilar saman og það er mikilvægt að hafa það í huga þegar við fjöllum hér um þessi gjöld og skatta sem við erum að tala um hér í dag. Það er miður að sjá röð hækkana á álögum á almenning í landinu og á fyrirtækin í landinu þegar maður sér þess engin merki í fjárlögunum eða í öðrum málum frá ríkisstjórninni að hafa eigi hemil á útgjöldunum. Eina hagræðingin sem núverandi stjórnvöld bera á borð fyrir okkur er á tekjuhliðinni sem vinstri mönnum tekst að kalla hagræðingu, að auka tekjurnar eða fara dýpra í vasa landsmanna. Með öðrum orðum má því segja að það sem við erum að fjalla um í dag sé að fara dýpra í vasa almennings af því að ríkisstjórnin kemur sér ekki saman um að hemja útgjöld ríkissjóðs.

Hvaða gjöld eru þetta sem við erum helst að fjalla um í málinu í dag? Það eru almennar krónutöluhækkanir þar sem öll almenn gjöld eru hækkuð um 3,7%. Við erum þar að tala um útvarpsgjald, áfengisgjald og fleiri slík gjöld. Olíu- og bensíngjöld eru að hækka, kolefnisgjöld og áfram mætti telja, um 3,7%. Á það skal bent að undanfarin ár hafa fyrri stjórnvöld aðeins hækkað þessa tölu að hámarki um 2,5% eða um verðbólgumarkmið Seðlabankans. Þannig má með sanni segja að þessi gjöld hafi lækkað síðastliðin ár. Það var gert út af þeim efnahagshorfum sem þá voru, eftir að jarðhræringar höfðu orðið, heimsfaraldur, brotist út stríð og fleira. Því var ekki talið forsvaranlegt fyrir heimilin í landinu, fyrir atvinnulíf í landinu, að hækka þau meira en um 2,5% eða verðbólgumarkmið. Það var meira að segja hluti af kjarasamningum að gera það ekki. Það komu meira að segja ár þar sem það voru ekki einu sinni hækkanir, þau stóðu í stað. Þannig rýrnuðu þessi gjöld.

Fjölskyldan sem eining fær sendingu hér frá stjórnvöldum. Hún fær tékkann. Fjölskyldurnar í landinu sem hafa verið að treysta á það að nota séreignarsparnaðinn sinn skattfrjálst til að greiða inn á íbúðalánið og lækka mánaðarlega greiðslubyrði af fasteignaláninu sínu og nota sparnaðinn til þess; þetta er sparnaðarhvetjandi aðgerð sem hjálpar fólki að greiða niður skuldir heimilisins og verður að framtíðarlífeyrissjóði. Það eru fá atriði betri til að eiga í lífeyri en fasteignin manns, að eiga öruggt skjól yfir höfuðið og eiga skuldlausa fasteign þegar maður hættir á vinnumarkaði. Þessi ráðstöfun hefur núna verið við lýði í tíu ár. Núverandi stjórnvöld segjast ætla að framlengja þetta úrræði þannig að það gildi alltaf í tíu ár. Það vill svo til að flestir núverandi notendur þessa úrræðis höfðu annaðhvort tíu ára rétt sem fyrstu kaupendur eða hafa verið í úrræðinu frá upphafi og því munu þeir ekki fá að njóta þess lengur af því að tíu ár eru liðin. Það er því enn einn orðaleikurinn hjá hæstv. ríkisstjórn að segjast ætla að framlengja það en svo er það bara fyrir einhverja örfáa.

Þá er það önnur sending til fjölskyldunnar, og það er oft sama fólkið sem er að nýta sér þessi tvö úrræði, þ.e. afnám samsköttunar hjóna. Það eru tæplega 30 þúsund einstaklingar í þessu landi sem hafa notið góðs af samsköttun hjóna. Samsköttun hjóna byggist á því að fjölskyldan sé grunneining sem rekur sig saman, standi saman í blíðu og stríðu, að hjón beri ábyrgð á skattskuldum hvort annars en fái líka að nýta skattahagræði hvort annars. Um það snýst samsköttunin. Af hverju er samsköttunin svona mikilvæg fyrir fjölskyldurnar? Jú, af því að hún kemur oftast til þegar sérstakar aðstæður eru í fjölskyldum. Það eru ekki margar fjölskyldur sem nýta sér samsköttunina alltaf, heldur á ákveðnu tímabili í lífi sínu. Það er fjöldinn allur af fjölskyldufólki sem hefur haft samband við mig og hefur miklar áhyggjur af þessu máli. Allt það sem við gerum hér og ákveðum hefur áhrif á daglegt líf fólks. Því skyldum við hér í þessum sal skoða endinn áður en við hefjumst handa eða eins og sagt er: Í upphafi skal endinn skoða. Það má líka segja þetta eins og fólkið í gamla daga áttaði sig á, að maður pissaði ekki eftir á. Það gæti farið illa. Því skulum við hugsa núna til fjölskyldnanna sem voru búnar að gera plan um það að annar makinn myndi klára háskólanámið sitt. Fjárhagslega átti það að ganga upp, að skrá sig í háskólanám og sinna náminu út af því að þau gátu gengið að samsköttun hjóna vísri sem hefur verið við lýði í mörg ár. Samsköttun hjóna varð til þess að makinn treysti sér til að skrá sig í háskólanám. Nú eru þau áform farin út um gluggann. Hjón að eignast nýtt barn, þau treysta sér til að framlengja viðveru inni á heimilinu með nýfædda barninu og sinna því. Mörg þeirra komast að vísu ekki út af heimilinu þar sem ekki eru leikskólapláss til staðar, komast ekki út á vinnumarkaðinn vegna skorts á leikskólaplássi eða öðru umönnunarplássi. Þá nýtist samsköttun hjóna. Það er oft sem annar makinn vinnur langt frá heimilinu um tíma. Þar má t.d. nefna sjómenn, það eru oft læknar sem vinna erlendis í úthaldi og öðru slíku. Þessi hjón nýta samsköttun til þess að láta rekstur heimilisins ganga upp þannig að hægt sé að sinna börnunum og annað foreldrið sé til staðar. Það koma upp langtímaveikindi. Það koma upp skammtímaveikindi þar sem oft reynir á fjárhag fjölskyldunnar. Þar gagnast samsköttun hjóna.

Hvernig réttlæta stjórnarflokkarnir það að afnema samsköttun hjóna? Jú, eins og þeir réttlæta flestallar aðrar gjaldahækkanirnar, með öfundsýki og með því að skilgreina einhverja ákveðna hópa. Það er einhver sem mögulega á aðeins meiri peninga en aðrir, þá er allt í lagi að hann borgi meira. Miðaldra hvítir karlmenn sem eru á háum launum, þeir mega borga meira. Það er allt í lagi að setja allar þessar fjölskyldur í uppnám af því að þetta bitnar mest á miðaldra hvítum karlmönnum, heyrði ég nú bara áðan í andsvari hjá hv. formanni efnahags- og viðskiptanefndar. En það er nú bara þannig að fjölskyldan er samsett af tveimur einstaklingum og þeir njóta báðir samsköttunarinnar og eins og ég fór yfir áðan er það einmitt makinn sem er tímabundið með tekjumissi eða lægri tekjur út af fjölbreyttum ástæðum sem hefur þá visst fjárhagslegt sjálfstæði innan fjölskyldunnar út af þessu úrræði. Það er verið að taka réttindin af þeim aðila sem er að reka fjölskylduna. Það er verið að taka þetta frá því að það sé hægt að sinna börnunum betur. Þetta úrræði gerir foreldrum það kleift. Nei, þetta er allt í lagi af því að það eru einhverjir í efstu tekjutíundinni sem gætu notið góðs af þessu og þá er þetta stórhættulegt, af því að einhverjir í hæstu tekjutíundinni gætu notið góðs af þessu. Ótrúlegur málflutningur sem er líka notaður yfir það hvernig vörugjöldum á bílana er útdeilt. Það er líka notað í því að það sé engin ástæða til að framlengja séreignarsparnaðinn og þannig mætti lengi telja. Þetta er líka notað sem ástæða fyrir því að hækka veiðigjöldin. Af því að það væru einhver fá stór sjávarútvegsfyrirtæki sem nytu góðs af því væri hægt að hækka veiðigjöldin þótt það væri verkafólkið í landi sem missti fyrst vinnuna, því miður, og það var fyrirsjáanlegt. Við verðum að sjá hverjir það eru sem þurfa að láta eitthvað af hendi fyrir þessar skattahækkanir.

Fyrst ég er að tala um fjölskylduna, þá er það afnám skattgjalda sem við Sjálfstæðismenn höfum oft mælt fyrir. Eitt skipti, þegar við mæltum fyrir afnámi stimpilgjalds, þá kom nú einn stjórnarflokkurinn, Viðreisn, og bætti um betur og vildi afnema öll stimpilgjöld á meðan við vorum að fókusera á stimpilgjöld af íbúðarhúsnæði og bújörðum. Ef við horfum í efnahagsumhverfið núna þá er erfitt á fasteignamarkaði, sérstaklega fyrir fyrstu kaupendur sem nú fá bara hluta af stimpilgjöldunum endurgreitt. Fyrir ungar barnafjölskyldur, sem ég er búinn að vera að tala mikið um hér varðandi samsköttun, séreignarsparnaðinn og annað slíkt, þá yrði þetta gríðarleg búbót ef stimpilgjöldin yrðu afnumin sem við höfum frumvarp um hér í þinginu og lögðum til breytingar líka við fjárlagaumræðuna hér áður. Þetta eru því þeir skattar sem tengjast fjölskyldunni beint fyrir utan það sem ég nefndi áðan, 3,7% krónutöluhækkunina sem hækkar ekki bara mörg gjöld sem fjölskyldan þarf að inna af hendi, heldur hefur ekki síst áhrif á verðbólguvæntingarnar sem dregur þá úr lækkun verðbólgunnar og jafnvel hækkar hana. Ef stjórnvöld trúa því ekki sjálf að við komumst niður í markmið Seðlabankans og gera ráð fyrir að verðbólgan verði 3,7%, þá eru litlar líkur á að aðrir trúi því.

En svo er það hin ótrúlega uppákoma í þessu máli sem hefur litað vinnslu þessa máls, að það voru kynntar hér í fjárlögunum tekjur upp á 7,5 milljarða af vörugjöldum á ökutæki en ekkert meira sagt um það. Það var bara óútfært. Stjórnvöld vantaði bara 7,5 milljarða og ákváðu að sækja það til ökutækjaeigenda, gáfu sér svo rúman mánuð í að átta sig á því hvernig þau ætluðu að ná þessum 7,5 milljörðum af kaupendum ökutækja. Það kom í minnisblaði inn til nefndarinnar eftir að 1. umræðu var lokið. Það verður að segjast eins og er að mestöll vinna nefndarinnar snerist um þessi vörugjöld eftir það og önnur atriði fengu því miður minni athygli. Það væri hægt að halda hér langar og margar ræður um þessi vörugjöld en til að lýsa því best þá má kannski segja að þarna hafi verið kveikt á mörgum röngum hvötum. Þarna var talað um að ná markmiði um tekjuöflun en með því að gefa frá sér tekjur. Þarna er verið að gera skattalegan hvata til efstu tekjutíundarinnar sem hefur verið versti óvinurinn í öllum öðrum skattahækkunum hér og þetta ruglar öll önnur kerfi og alla aðra starfsemi. Þetta snertir nánast hvern einasta landsmann á einn eða annan hátt, þessi breyting sem kemur hér inn í minnisblaði eftir 1. umræðu inn í nefndina. Það var enginn óhultur í þessu. Þarna er verið að setja vörugjöld á fornbíla, það er verið að setja vörugjöld á keppnistæki. Sem betur fer var komið aðeins til móts við það en þar kom aftur í ljós þessi öfundsýki af því að einhverjir örfáir, kannski einn eða tveir annað hvert ár, keyptu sér svona hálfgerða safngripi, voru ekki mikið að keppa á bílunum, voru með þá inni í bílskúr mestallan tímann á sérnúmerum með miklar kvaðir í sjö ár, þá var bara allt mótorsport sett undir og það var sagt: Við erum að loka skattaglufum. Ef Viðreisn ætlar að nota það orð að ef einhver borgar ekki vörugjöld af einhverju tæki þá sé það skattaglufa, þá erum við Sjálfstæðismenn stoltir að bera þann kyndil að hafa búið til eitt þúsund skattaglufur þegar við afnámum öll almenn vörugjöld og tolla hér fyrir nokkrum árum. Við tökum þann kyndil bara stolt að hafa afnumið almenn vörugjöld og tolla af öllum almennum vörum og þannig búið til þúsund skattaglufur í hugum núverandi stjórnarliða. Það kemur nefnilega fram í kílómetragjaldsmálinu sem við höfum rætt hér og er ekki fullrætt hér enn, er bara í smápásu, að lægstu tekjutíundirnar eru á eldsneytisdrifnum bílum eða á bílum sem ganga fyrir bensíni og olíu. Það kemur skýrt fram þar. Fjölskyldubíllinn hjá lægstu tekjutíundunum er því að fara að hækka hér um nokkur hundruð þúsund upp í 1,5 millj. kr. Ég vona að Flokkur fólksins sé stoltur af því að senda þann reikning inn í lægstu tekjutíundirnar. Eins og kílómetragjaldið er útfært — ef þeim sem eru í lægstu tekjutíundunum, eldri borgurum eða bara almennt þeim sem eru ekki mjög tæknisinnaðir, þeim hópum sem ættingjar og vinir eru oft að hjálpa með rafræn skilríki og annað, misferst að skrá kílómetragjaldið þá gætu þeir þurft að nota jólabónusinn, sem ríkisstjórnin ætlar að senda núna fyrir jólin, til að borga eftirágreiðslur, skattskuldir til Skattsins. Er þetta staðan sem við viljum setja fólkið í? Hækka ökutækin, fjölskyldubílinn, og búa til skattskuld eftir á? Það sem er líka svo alvarlegt við vörugjöldin sem koma inn eftir á er að þau margfalda þau vondu áhrif sem eru af kílómetragjaldinu. Svo er líka hægt að segja að kílómetragjaldið margfaldi þau vondu áhrif sem eru af vörugjaldinu. Þetta mun einskiptis hækka vísitöluna nú um áramótin.

Ég mun koma í aðra ræðu, virðulegur forseti, og fara betur yfir vörugjöldin og hversu rugluð þau eru, það væri hægt að halda margar ræður um þau. En allt það sem ég hef farið yfir hingað til leggst beint á fjölskyldur í landinu. Það eruð þið, landsmenn góðir, sem fáið reikninginn, óháð því í hvaða tekjutíund þið eruð, óháð því hvort þið séuð á almannatryggingum eða atvinnuleysisbótum, þar sem atvinnuleysi fer því miður vaxandi, eða séuð hin sígilda millistétt með breiðu bökin að ala upp börnin ykkar. Það eruð þið sem þurfið að þola það að hafa ekki samsköttunina lengur, geta ekki borgað séreignarsparnaðinn inn á lánið ykkar lengur. Það eruð þið sem eruð ekki að fara að fá stimpilgjaldið. Það eruð þið sem eruð að fara að borga meira ef þið þurfið að endurnýja ökutækið vegna stækkandi fjölskyldu eða annað. Það eruð þið sem þurfið að fara að borga kílómetragjöldin og sérstaklega fólkið sem býr úti á landi sem þarf að fara að borga hærra vöruverð fyrir það að vörur séu fluttar út á land þar sem kílómetragjaldið leggst hvað verst á þungaflutningana. Þetta er ekki góð staða. Ég vil þó segja að það eru jákvæðar breytingar á vörugjaldinu, lágmarksvörugjaldið átti að fara upp í 15% en fer bara upp í 10%. Samt nær sú aðgerð ekki alveg markmiðum sínum út af mælieiningunni á milligrömmum af mengun í hverjum lítra af eldsneyti sem er brennt. Fyrir þessa umræðu kom rökstutt álit frá Samtökum verslunar og þjónustu og Bílgreinasambandinu, ítarlega rökstutt með vísan í dóma Hæstaréttar, um að hér sé brot á stjórnarskrá. Hér sé jafnræðisregla stjórnarskrárinnar brotin í því máli sem við fjöllum um hér, um vörugjöld, sem kom hér inn í þingið eftir 1. umræðu og mun ekki hljóta þrjár umræður. Mögulega er því hér ákvæði sem var ekki inni í frumvarpinu þegar það var flutt við 1. umræðu, kemur algerlega nýtt inn og er mögulega brot á jafnræðisreglu stjórnarskrár og á að fara að klára hér við aðeins tvær umræður, svo að það komi hér fram. Það er bót í máli að gefa 500 þús. kr. frítekjumark á keppnistæki en mótorsportið mun samt finna fyrir þessu. Þetta mun hafa áhrif á mótorsportið. Þetta mun hafa mikil áhrif, það munu ekki vera jafn örugg keppnistæki. Það verður erfiðara fyrir þá sem eru að keppa, hvort sem það eru unglingar, börn eða fullorðnir, í mótorsporti að kaupa sér og endurnýja sín keppnistæki með nýjum bremsubúnaði, nýjum öryggisbúnaði og öðru slíku. Þetta mun því hafa bein áhrif á íþróttalífið, bein áhrif á fjölskyldurnar og annað slíkt. Ég minntist á að það var aðeins lagað til en það mun ekki duga til. Hvernig var þetta svigrúm til þess að geta komið til móts við nokkur atriði í þessu búið til? Jú, það var með því að hækka hámarksvörugjöldin úr 65% upp í 70%. Svo leggst virðisaukaskattur á, þannig að stjórnvöld eru komin með yfir 100% skattlagningu á mörg ökutæki. Oft eru það ökutæki sem eru mikilvæg fyrir fjölskyldur sem búa úti á landi, eru fjölmennar og annað slíkt. En ég fer ítarlegar í annarri ræðu yfir vörugjöldin og áhrifin af þeim.

Ég ætlaði bara hér í lokin að fagna því að meiri hlutinn í efnahags- og viðskiptanefnd sá að sér og hætti við að leggja til lækkun á sóknargjöldunum, en gekk ekki eins langt og við í minni hlutanum vildum. Við leggjum til að sóknargjöldin verði verðbætt milli ára, en raunverulega eru sóknargjöldin að rýrna. Hv. þm. Pawel Bartoszek sagði áðan að það væri mikilvægt að hækka krónutölurnar um 3,7%, annars væru þær að rýrna, þannig að þá hljóta sóknargjöldin að vera að rýrna um 3,7%. En það er alla vega gott að það sé fallið frá því að lækka þau eins og átti að gera.

Ég vil játa hér synd frá fyrri ríkisstjórn þegar innviðagjöld voru sett á. Það var ekki bara slæmt að það voru sett innviðagjöld á skemmtiferðaskipin umfram það sem er að gerast í löndunum í kringum okkur og þessar auknu álögur á þá atvinnustarfsemi, heldur hve fyrirvarinn var stuttur. Það hefur verið vandamál hér og er okkur öllum sem höfum komið að því til vansa, ég hef gagnrýnt það mikið hér í gegnum tíðina. Og við sáum hvernig það endaði. Það endaði með samdrætti, þetta kom ekki betur út fyrir neinn. Þetta var sett á sem tekjuöflunarleið sem var alveg augljóst í upphafi að myndi aldrei virka. Ég er ánægður með að meiri hluti hv. efnahags- og viðskiptanefndar sjái þetta og sé að leggja hér til lækkun á innviðagjöldum og leiðrétta þessi mistök fyrri stjórnvalda. Það sem hryggir mig er það að þau eru að gera öll sömu mistökin aftur og aftur í þessu sama frumvarpi með því að setja á vörugjöld og kílómetragjöld og allt með stuttum fyrirvara sem mun hafa sömu áhrif. Við munum öll koma með skottið á milli lappanna hér að ári og þurfa að laga þetta allt saman aftur og bregðast við.

Virðulegur forseti. Við í Sjálfstæðisflokknum lögðum til fullt af breytingartillögum til hagræðingar, til að fjármagna þær skattalækkanir sem við leggjum til og um það hvernig hægt væri að komast hjá þessum hækkunum. Við erum að einhverju leyti að gera það í þessu nefndaráliti líka og munum áfram berjast fyrir lægri álögum á heimilin og fyrirtækin í landinu. Þannig aukum við velferð íslensks samfélags.