breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni og félaga mínum í efnahags- og viðskiptanefnd fyrir áhugaverða ræðu sem var nú farsakennd á köflum, verð ég að segja. Af því að ég hef ekki nema mínútu ætla ég bara að fara beint í efnið. Eins og hv. þingmaður veit er grunngerð tekjuskattskerfisins á Íslandi ekki fjölskyldan heldur er hér einstaklingsskattlagning með þremur stigvaxandi skattþrepum og persónuafslætti. Það hefur verið einhver upplýsingaóreiða í þessu máli. Það er verið að gera því skóna að verið sé að afnema persónuafslátt þegar verið er að afnema samnýtingu efstu skattþrepa. Það er náttúrlega með algjörum ólíkindum að verið sé að búa til einhverja sögu af litlu fjölskyldunni sem nær ekki endum saman af því að verið sé að taka þessa skattaívilnun af, þessa skattaívilnun sem þeir njóta sem hafa hæstu tekjurnar, eiga mestu eignirnar og njóta mestu fjármagnsteknanna. Það er með ólíkindum að þingmaðurinn skuli halda því fram að um sé að ræða aðför gegn litlu fjölskyldunni á námslánum sem á svo erfitt, glímir við einhver veikindi o.s.frv. Þetta er bara hinn hefðbundni einstaklingur sem nýtir þetta, nýtir þessi úrræði sem við erum að afnema; einstaklingur sem er í efstu tekjutíund og makinn nánast alltaf í næstefstu tekjutíund. Þetta kemur fátæku fólki nánast ekkert við. En það er bara týpísk orðræða hjá Sjálfstæðisflokknum að nota millitekjufólk sem vörn fyrir hagsmuni þeirra sem hafa það best í samfélaginu. Ég vil biðja þingmanninn að segja það upphátt að hér sé verið að afnema samnýtingu efstu skattþrepa og við séum ekki að hræra í persónuafslættinum eins og margir vilja meina hér, sem er bara ekki rétt og er þvæla. Ég bið þingmanninn að segja það hér í ræðustól nema hann hafi aðra skoðun á því. Og þá er það lygi.
(Forseti (BHar): Forseti biður alla hv. þingmenn um að gæta orða sinna.)