157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:02]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka formanni efnahags- og viðskiptanefndar fyrir þetta andsvar og fyrir að gefa mér tækifæri til þess að koma mínum sjónarmiðum á framfæri um það að stjórnvöld, sem eru að leggja þessa breytingu til, þekki ekki sitt eigið mál, þekki ekki skattareglurnar á Íslandi. Ég hef verulega miklar áhyggjur af því, þar sem hjón eru ein skattaeining. Það heitir á skattframtalinu samsköttun hjóna. Það sem við erum að tala um hér er ekki persónuafslátturinn. Við höfum aldrei haldið því fram að verið sé að hreyfa við honum heldur erum við að tala um það að samnýta skattþrepin ef þau eru ekki fullnýtt. Það eru hjónin sem skapa hina sameiginlegu skattaeiningu sem gera það. Meiri hluti Íslendinga er í miðþrepinu og að sjálfsögðu eru flestir sem nýta þetta þar. Og hverjir eru í miðþrepinu? Þetta eru oftast ungu fjölskyldurnar sem eru alltaf breiðu bökin hér, alltaf er farið í vasa þeirra. Þau hjón, þær fjölskyldur, eru að borga sitt fyrsta húsnæði eða stækka húsnæði af því að börnunum er að fjölga. Þau eru að borga háskólanámið sitt, að kaupa fjölskyldubílinn. Þau eru með þessar tekjur og því skiptir samsköttunin þau rosalega miklu máli. Þó að annar aðilinn sé með hærri tekjur en hinn með lægri, vegna aðstæðna innan fjölskyldunnar, eru hjónin samanlagt kannski ekkert með neitt rosalega háar tekjur. Þau eru þá bara á meðaltalstekjum og þurfa á þessu að halda á þessu dýrasta rekstrarskeiði fjölskyldunnar, þegar börnin eru að vaxa úr grasi. Það er þar sem þetta mál er statt.