breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Það var gott að fá það á hreint að við séum ekki að vasast í persónuafslættinum og að við séum eingöngu að ræða efstu skattþrepin; það er mjög gott að það er komið á hreint. Þessi saga, um að það séu stúdentar nýkomnir úr námi sem njóti þessarar skattaívilnunar, er bara röng. Þverskurðurinn af þeim sem eru að njóta þessa úrræðis er 54 ára og það er mjög líklegt að það fólk búi í Garðabæ eða á Seltjarnarnesi. Þetta sýna þau gögn sem við höfum undir höndum og mér finnst bara að menn eigi ekki að vera að búa til einhverja aðra sögu. Mér fannst mjög gott að fá þetta fram, að þingmaðurinn skyldi segja það hér í ræðustól að þetta væru efstu skattþrepin.
Svo langar mig aðeins að ræða hér — ég veit ekki hvort hann var að gera því skóna að verið væri að fremja brot á stjórnarskrá við meðferðina á þessu máli. Ég vona ekki. Við fengum náttúrlega breytingartillöguna á vörugjöldunum inn í október og ég get alveg verið sammála þingmanninum í því að það hefði verið betra að fá það fyrr inn. En ég held að það sé fjarri lagi brot á stjórnarskrá. Við sáum hvernig búvörulögin fóru hér og fóru fyrir Hæstarétt, það stóðst. Ég myndi halda að sá dómur hefði eitthvað að segja.
Ég vil kannski biðja hv. þingmann að fara aðeins aftur yfir það. Er hann að væna ríkisstjórnina um brot á stjórnarskrá? Ég held að það væri fróðlegt fyrir þingheim að heyra það. Ef hann er að gera það þá ætla ég að biðja hann að rifja upp búvörulögin og skoða þau.