breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Það er gott að það kemur hér fram hjá hv. þingmanni að fólk sé dregið í dilka. Ef það býr í ákveðnum sveitarfélögum og ef það er á ákveðnum aldri þá er allt í lagi að hækka á það skattana. Þá er það fólk réttdæmt til að borga og borga. Ef þú býrð í Garðabæ eða á Seltjarnarnesi ertu ekki venjulegt fólk og þá þarftu að borga meira. Það er bara þannig að þetta snertir 30.000 einstaklinga. Flestir Íslendingar eru í þessu skattþrepi, langsamlega flestir. Við erum því að tala hér um beina skattahækkun á almenning. Við erum einmitt að tala um fólk á þeim aldri sem er með börn á framfæri, börn í íþróttum, börn sem eru að fara í nám; fólk sem þurfti að fjárfesta í stærra húsnæði. Við erum að tala um það að samsköttunin nýtist helst þegar tekjufall verður hjá öðrum makanum af einhverjum ástæðum. Það getur verið vegna veikinda, langvarandi eða skammvinnra. Það getur verið út af barneignum, það getur verið út af háskólanámi. Það getur verið út af því að makinn vinnur löngum stundum frá heimilinu. Hvað varðar stjórnarskrána þá var ég að benda á það að eitt ákvæðið hér sem verið var að breyta gæti verið, og það var rökstutt af Samtökum verslunar og þjónustu, stjórnarskrárbrot, brot á jafnræðisreglunni, út af því að ekki væru allir eigendur ökutækja skattlagðir á sömu forsendum. Ég vona að hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar hafi lesið þá framhaldsumsögn af því að það er stórt og alvarlegt mál.