breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir sína ræðu sem var góð, ítarleg og áhugaverð í alla staði. Það sem mig langar að ræða við hv. þingmann er nú ýmislegt en tíminn er knappur þannig að ég ætla að reyna að velja vel. Mig langar að byrja á vörugjöldunum og það er náttúrlega gríðarlega margt sem er áhugavert. Ef maður skoðar hækkunina á vörugjöldunum á bensín- og dísilbíla, sem segir í raun og veru í kílómetragjöldunum að séu þau ökutæki sem eru notuð úti á landi og á að reyna að verja í kílómetragjöldunum, er ekki augljóst að þessi hækkun vörugjalda mun bitna á íbúum landsbyggðarinnar?
Síðan langar mig að spyrja hv. þingmann varðandi akstursíþróttirnar: Sú tilfinning sem ég er með eftir að hafa hlustað á AKÍS og ÍSÍ og átt samtöl við aðila þar inni er að það sé raunveruleg hætta á því að þetta muni stórlaska íþróttina. Þetta snýst um að það eru 100 milljónir, með breytingartillögum minni hlutans eru þetta 90 milljónir, það er ekki nema 10 millj. kr. afsláttur gefinn með breytingartillögunni. Er hv. þingmaður ekki sammála mér í því að það sé glórulaust að ráðast á íþróttastarfsemi með þessum hætti sem og allt tal um að menn séu að svindla á kerfinu og það þurfi að bregðast við því? Ég hef ekki séð neinar haldbærar skýringar aðrar en einhverjar sögusagnir um slíkt. Mig langar í mínu fyrra andsvari að byrja þarna, virðulegur forseti.