157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:10]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir að draga mjög mikilvæga punkta fram í þessu háalvarlega máli sem vörugjöldin eru af því að vörugjöldin leggjast náttúrlega fyrst og fremst á landsbyggðina á svo fjölbreyttan hátt. Jú, flestir dísil- og bensínbílarnir eru úti á landi og mikið af atvinnustarfsemi úti á landi byggist á bensín- og dísilbílum. Svo er það líka bara þannig víða um landið að hleðsluinnviðir fyrir rafmagnsbíla eru bara ekki til. Landsnet, sem er ríkisfyrirtæki, er ekki einu sinni tilbúið með línurnar til að leggja hleðsluinnviðina og byggja þá upp. Þetta mun hækka verðið hjá þeim öllum.

En talandi um íþróttastarfsemina áður en ég fer beint inn í AKÍS þá er það bara þannig að vörugjöldin hækka líka verð á bílaleigubílum sem landsbyggðin nýtir til þess að keyra á íþróttamót. Íþróttafélögin úti á landi eru með mestan kostnað af því að ferðast hingað á suðvesturhornið til að keppa í íþróttum. Þau nota bílaleigubíla sem eru fara að hækka verulega í verði út af vörugjöldum og kílómetragjaldi. Þetta eru skilaboðin til íþróttastarfs í landinu, til barnanna, frá Flokki fólksins. Svo er það varðandi mótorsportið sem er mjög vaxandi á Íslandi í dag. Það er mikið af krökkum að koma inn í mótorsport núna. Það er dýr búnaður sem þarf þarna til. Þarna erum við að tala um 100 milljónir, af því að mögulega einn eða tveir voru að svindla þá skulum við ráðast á allt mótorsportið með því að afnema undanþáguna, gefa einhvern smá 500.000 kr. afslátt af vörugjöldunum og skreyta sig svo með því að setja 100 milljónir í ferðasjóð ÍSÍ. (Forseti hringir.) Þetta er svo mikil hræsni að það nær ekki nokkurri átt. Ég hef miklar áhyggjur af því hvaða afleiðingar þetta hefur fyrir íslenskt mótorsport.