breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að forsendurnar náttúrlega standast ekki neitt. Það gerist náttúrlega þegar þú ákveður fyrir fram að þig vanti 7,5 milljarð til þess að ná fjárlögunum saman og ferð svo bara einhvern veginn að reyna að smyrja inn í það án þess að hafa nokkra þekkingu á markaðnum. Það kom svo augljóslega í ljós í meðförum nefndarinnar að þeir sem eru að semja þessar tillögur og eru að fylgja þeim eftir vita ekkert hvernig markaðurinn virkar. Svona miklar gjaldahækkanir kalla strax fram hegðunarbreytingu. Nú eru ekki bara bílaleigurnar á fullu að reyna að kaupa alla þá bíla sem þær geta á lægra vörugjaldi og borga þá líka lægri virðisaukaskatt heldur eru einstaklingar líka farnir að kaupa sér bíl fyrir áramót. Það er nú bara þannig að bílasalan er kannski svona þriggja ára hringur. Þetta hefur áhrif næstu þrjú árin til lækkunar á sölu þannig að það er búið að rökstyðja það með fjölda gagna og staðreynda fyrir vinnu nefndarinnar að það munu aldrei koma einir 7,5 milljarðar í tekjur á næsta ári. (Forseti hringir.) En þessi ríkisstjórn ætlar að prenta peninga til að geta haldið útgjaldafylliríi sínu áfram.