157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:16]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðilega ræðu. Það sem kom upp í hugann á mér, þegar ég var að hlusta á hv. þingmann, var myndlíking sem oft hefur verið notuð í gegnum tíðina er varðar mjólkurkúna. Mjólkurkýr hvers samfélags eru væntanlega fyrst og fremst tvær, annars vegar atvinnulífið og hins vegar fólkið í landinu. Þetta er tekjumyndun ríkisins, þetta eru mjólkurkýrnar. Mér flaug þetta í hug og þess vegna ákvað ég að nefna það. Þegar maður horfir á allar þessar skattahækkanir, ég ætla ekki að telja þær allar upp, ég er þó kominn með alveg ágætislista, þá veltir maður fyrir sér: Ef við hefðum nú samband við mjólkurbónda og spyrðum hvernig færi með nytin ef við mjólkuðum oftar og gæfum minna, halda menn að einhver bóndi reikni með því að hann fái þá fleiri lítra? Þetta er í grunninn sama lögmálið. Á einhverjum tímapunkti erum við komin í botn. Það verður ekki meira sótt án þess að það fari að hafa þær afleiðingar að heildin minnki. En svo hér í blálokin: Hv. þingmaður fjallaði hér örlítið um ákveðinn dóm sem væri mögulega brot á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Ég hefði gagn af því ef hv. þingmaður vildi fara aðeins betur yfir það mál og útskýra það aðeins betur fyrir þingheimi.