breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott innlegg inn í þessa alvarlegu umræðu. Það passar alveg að orða það sem svo að með skattorminum sem við ræðum hér sé verið að ganga ansi hart að nokkrum mjólkurkúm. Þær munu mjólka minna á næsta ári, þessar kýr. Það verða ekki jafn margir lítrar sem skila sér í mjólkursamlagið á næsta ári, það er alveg augljóst. Skopmyndateiknari Morgunblaðsins náði því bara mjög vel á mynd í gær, þar sem fjármálaráðherra var að mjólka kúna og bjóða öllum meira en kýrin var orðin grindhoruð. Það var sett mjög myndrænt fram í Morgunblaðinu í gær hvað gerist. Við höfum dæmi í þessu máli þar sem ríkisstjórnin er einmitt að leiðrétta mistök fyrri ríkisstjórnar sem ætlaði að blóðmjólka skemmtiferðaskipin. Ríkisstjórnin gerir svo bara sömu mistökin í sama máli. Þetta gengur bara ekki upp. En varðandi dóminn og brot á jafnræðisreglunni þá er það þannig að ökutæki sem flytjast til landsins eru út af einhverjum mengunarreglum misjafnlega skráð, þ.e. eftir því hvað þau menga mikið. Þú getur verið með sama ökutækið en ef það er flutt inn á ólíkum tíma er mengunarskráning ökutækisins misjöfn. Þegar Evrópusambandið bjó til þessar reglur sendi það öllum aðildarríkjum EES-samningsins ordrur um að nota þetta ekki til skattlagningar. Það er það sem við erum að gera núna. Við erum að nota þetta til skattlagningar. Eins ökutæki verða skattlögð á mismunandi hátt út af því að það er verið að nota reglur sem á ekki að nýta til skattlagningar heldur hafa annan tilgang.