157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:20]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðilegt svar. Það var mjög áhugavert sem fram kom þar, ekki síst sá hluti svarsins er laut að því að þessu hefðu meira að segja fylgt leiðbeiningar um hvernig ekki ætti að nota þetta. Engu að síður er þetta gert þannig að fleiri sambærileg mál hljóta að vera í uppsiglingu.

Hv. þingmaður átti hér fyrr í orðaskiptum við hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur um samsköttun hjóna. Ég saknaði þess aðeins í þeim samskiptum að hugtakið „sameiginleg skattaleg ábyrgð“ kæmi ekki fram. Ég þekki menntun hv. þingmanns og hefði því gjarnan viljað að hann ávarpaði þann þátt málsins líka, hvort það sé ekki rétt skilið hjá þeim sem hér stendur að í hjónabandinu sé sameiginleg skattaleg ábyrgð.