157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:21]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að koma inn á þennan punkt. Það er nú þannig með allan þennan fjölda skattbreytinga að það er svo margt vitlaust við þetta og svo margt rangt að maður gæti haldið hér langa ræðu um hvert atriði fyrir sig. Jú, það er einmitt þannig að fjölskyldan er þessi grunneining og hjón bera sameiginlega skattaábyrgð. Eins og einhver sagði þá er bara tvennt öruggt í þessu lífi, skatturinn og dauðinn, þannig að þú losnar aldrei undan þeirri ábyrgð. En hér er verið að afnema hagræðið af því að vera hjón, það á að afnema hagræðið af því að geta samnýtt skattþrepin þegar hjón óska eftir því að vera samsköttuð á skattskýrslunni, það er það sem verið er að taka af. Ef fólk er ekki gift getur það fengið svo mikið af öðrum ívilnunum, fær fyrr pláss á leikskóla, hærri barnabætur og annað slíkt. Þetta er farið að hvetja til þess að fólk skrái sig ekki sem hjón. Ef þessi ávinningur er tekinn í burtu losnar fólk undan skattalegri ábyrgð og fær annan ávinning annars staðar.