breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmönnum fyrir góðar og upplýsandi umræður í þingsal. Ég hef reynt að fylgjast með þeim eins og kostur er. Hér er auðvitað margt að ræða. Til umfjöllunar er þessi svokallaði bandormur eða skattormur, eins og hann hefur verið kallaður af hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni, nokkuð með réttu. En þetta er samt svolítið athyglisvert mál fyrir þær sakir að frumvarpinu, sem í raun og veru ætti að vera hér til umfjöllunar, var útbýtt 9. september. Það var mælt fyrir málinu þann 15. september en 2. umræða málsins hefst ekki fyrr en núna 12. desember.
Ástæðan er öllum augljós: Vandræðagangur meiri hlutans í að líma frumvarpið og fjármál íslenska ríkisins saman. Það hefur gengið illa og ég hef svo sem fjallað um það í umræðu um fjárlögin hvernig hefur verið staðið að þessu öllu en þar var það sama uppi á teningnum, frú forseti. 2. umræða hófst tveimur vikum of seint. Það var bara nákvæmlega sama ástæðan. Verkefnið hefur reynst ríkisstjórninni mjög erfitt. Það hefur verið erfitt að fá jöfnuna til að ganga upp og hún gerir það auðvitað ekki. Ég lýsti því í umræðum hér um fjárlögin að frumvarpið til fjárlaga væri metnaðarlaust og litlaust reyndar, eins og hæstv. fjármálaráðherra hafði nú kallað það sjálfur, en þar er lagt upp með umtalsverðan halla á næsta ári að óþörfu. Það er mér óskiljanlegt þegar litið er til þeirrar tekjuaukningar sem er á milli ára miðað við umræður og upplýsingar sem hafa komið frá meiri hlutanum. Ég held að tekjuaukning ríkisins á milli ára sé 170 milljarðar. Það ætti auðvitað að vera nóg til þess að ráðast í þau nauðsynlegu verkefni sem við þurfum að vinna að hér á landi án þess að auka enn frekar við skuldasöfnun ríkisins. En það tekst ekki þegar útgjaldaaukningin er jafn há og raun ber vitni. Hér er ríkisstjórnin í því hlutverki einhvern veginn að reyna að láta dæmið og jöfnuna ganga upp, að excel-skjalið líti vel út og að þessi stöðugleikaregla haldi. Það er öllum augljóst að hún gerir það auðvitað alls ekki.
Einhverra hluta vegna höfum við hér, óbreyttir þingmenn hið minnsta, ekki fengið upplýsingar um hvað munar miklu, hvað ríkisstjórnin hefur upp á að hlaupa hvað stöðugleikaregluna varðar, ef eitthvað. Það sætir algerri furðu, sérstaklega í ljósi þess að hér áður fyrr þá var ekkert mál að reikna hana út. Auðvitað eru þessar upplýsingar til og þær eiga að liggja fyrir í þinginu. En allt hangir þetta á nokkrum æfingum. Ég mun auðvitað fara betur yfir hækkun vörugjaldanna hér á eftir en það er lagt upp með það að stöðugleikareglan haldi því sem næst að því gefnu auðvitað að vörugjöldin skili 7,5 milljörðum á næsta ári. Það vita það allir að svo muni ekki verða, enda hefur íslenskt atvinnulíf, eins og fólk gerir almennt, tekið ákvarðanir í samræmi við sinn eigin hag og reynir að minnka þann skaða sem skattlagning ríkisins veldur, til að mynda með því að flýta viðskiptum eins og fólk hefur gert varðandi innflutning á bifreiðum. Dæmið gengur auðvitað ekki upp.
Mér finnst ástæða til að nefna það líka hérna strax í upphafi að hæstv. forsætisráðherra, Kristrúnu Frostadóttur, var tíðrætt um að vitna í forseta Bandaríkjanna, Joe Biden, sem sagði: Ekki segja mér hvað þér finnst, sýndu mér fjárlögin þín og ég skal segja þér hvar þú stendur í stjórnmálum, þá skal ég segja hver stefnan þín er. Þetta sagði hún oft. Þetta sagði hún áður í áliti um fjármálaáætlun, þetta sagði hún í umræðum í þingsal: Ekki vera með einhverjar fagrar upplýsingar, sýndu mér bara yfirlýsingar, sýndu mér bara fjárlögin þín og ég skal segja þér hver stefna þín er. Það er augljóst ef maður skoðar fjárlögin, skoðar þennan bandorm, að þrátt fyrir yfirlýsingar oddvita ríkisstjórnarinnar í aðdraganda síðustu kosninga um frjálslyndi, um öflugt efnahagslíf, þrátt fyrir loforð um að hækka ekki skatta á venjulegt fólk, hvað svo sem það á nú að þýða, að þegar við skoðum fjárlögin og bandorminn út frá þessum mælikvarða, sem hæstv. forsætisráðherra var svo annt um þegar hún sat hinum megin við borðið og bar ekki ábyrgðina en gat verið yfirlýsingaglöð, þá er augljóst að ríkisstjórnin er vinstri sinnuð. Þetta er vinstri stjórn; það er augljóst á fjárlögunum sjálfum og þeim skattahækkunum sem stendur nú til að leggja á fyrirtækin í landinu og íslenskan almenning.
Þetta eru engar smá tölur, 27,9 milljarðar í heildina. Þegar er búið að lögfesta veiðigjöldin og útgerðin er að klóra sér í kollinum yfir álagningunni og álagningarseðlunum sem eru að berast — hvernig er hægt að reikna svona? Það er önnur saga og harmleikur sem ég held að við munum því miður þurfa að eiga við hér oftar á næstu mánuðum. Svo eru þessar ólögfestu breytingar og þær eru þó nokkrar hér í þessu frumvarpi sem við erum að ræða um. Fyrst ber auðvitað að nefna verðlagsuppfærslu krónutöluskatta. Ríkisstjórnin hefur verið gagnrýnd fyrir þetta; í staðinn fyrir að halda sig við verðbólgumarkmið Seðlabankans er sett flöt krónutöluhækkun, 3,7%, á þessa skatta. Mér þykir það svolítið sérstakt, aðallega þegar maður les umfjöllun meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar í nefndarálitinu um þessa verðlagsuppfærslu og sagt að hún sé í samræmi við verðlagsforsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2026, hækkun um sem sagt 3,75%. Svo byrjar maður að lesa rökstuðning. Þá fer maður að klóra sér í kollinum. Hvað er að gerast hér? Og þar segir, með leyfi forseta, að:
„Um sé að ræða aðgerð stjórnvalda á tekjuhlið ríkisfjármála sem miði að því að draga úr þenslu og verðbólgu.“
Ég er ekki hagfræðingur en ekki get ég áttað mig á þessu. Það er hægt að setja varalit á svín en það er enn þá svín. Þetta er akkúrat svona. Hvernig er hægt að halda því fram kinnroðalaust að þessi aðgerð miði að því að draga úr þenslu og verðbólgu? Ég geri mér grein fyrir því að það eru mismunandi sjónarmið hagfræðinga varðandi verðbólguþrýsting og aðgerðir sem geta skapað verðbólguþrýsting. En að halda því fram að þessi aðgerð dragi úr verðbólgu og þenslu, ég fæ það ekki til að ganga upp og get þess auðvitað að þessar vörur eru allar, áfengi, tóbak og nikótín, hluti af vísitölu neysluverðs. Þessi hækkun á krónutölugjöldum ætti að hafa áhrif á mælda verðbólgu, sannarlega. En þetta lýsir kannski þessu metnaðarleysi sem mér finnst einkenna verkstjórn þessarar ríkisstjórnar. Það er farið ofan í allar matarholur sem hugsanlega má finna og afleiðingin er þessi.
Ég gæti svo sem talað í löngu máli um einstaka atriði þessa frumvarps en það er svolítið sérstakt að standa hér í pontu og vera að tala um frumvarpið þegar frumvarpið sem var útbýtt hér og mælt fyrir 15. september hafði ekkert að geyma þær skattahækkanir sem nú stendur til að lögfesta. Þá er ég fyrst og fremst að tala um hækkun vörugjalda. Ég skil ekki hvernig hæstv. fjármálaráðherra eða sú ríkisstjórn sem er mjög annt um ímynd sína og ásýnd — mér er fyrirmunað að skilja hvers vegna hún einfaldlega leyfir sér að vinna að þessu máli með þessum hætti. Þá er ég að vísa til þess að frumvarpinu, bandorminum sjálfum, var útbýtt hér í byrjun september. Þar er ekkert um þessar miklu vörugjaldshækkanir að finna, ekki stafkrókur. Heldur fara menn að reikna í excel-skjalinu sínu í fjármálaráðuneytinu og hugsa með sér væntanlega að við getum ekki farið í öll þessi draumaverkefni okkar, þessa útgjaldaaukningu á alla, nema að hækka þessa skatta, hækka tekjuhliðina með vörugjöldunum. Úr verður þetta minnisblað fjármálaráðuneytisins frá 17. október síðastliðnum. Ég verð að segja að þetta sætir algerri furðu vegna þess að við erum hér að setja lög á þessu þingi, við erum að reyna að vanda okkur. Það eru skýrar reglur um það hvernig eigi að vinna að lagasetningu, ég tala nú ekki um lagasetningu sem felur í sér skattlagningu upp á fleiri milljarða. En við höfum sem sagt ekkert frumvarp, við höfum enga greiningu, við höfum ekkert áhrifamat til að tala um hér heldur eingöngu nefndarálit meiri hlutans. Það eru í rauninni þessi lögskýringargögn, hin eiginlegu lögskýringargögn, sem eiga að upplýsa almenning um hvað er hér á ferðinni. Þetta minnisblað ráðuneytisins frá 17. október er ótrúlegt, frú forseti.
Ég óttast að þessi ríkisstjórn sé búin að gleyma þrískiptingu ríkisvaldsins; að framkvæmdarvaldið sé komið fram úr sér, að ráðherrarnir telji sig geta gert hvað eina og við hér sem störfum á Alþingi séum svona í hlutverki stimpilpúðans. En þetta er sem sagt minnisblað sem var lagt fyrir efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis þann 17. október síðastliðinn og þetta er breytingartillaga ráðuneytisins á þessu frumvarpi sem við erum að ræða. Þar segir orðrétt, með leyfi forseta:
„Í ljósi þessa leggur ráðuneytið nú til meðfylgjandi breytingartillögu á frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026.“
Sem sagt, ráðuneytið er að leggja hérna fyrir efnahagsnefndina að breyta frumvörpum sem það hafði áður lagt fram og mælt fyrir. Það er efnahags- og viðskiptanefndin sem er að vinna að málinu og þetta minnisblað er ekki frumvarp. Þetta er ekki greinargerð í málinu og þetta mætir ekki þeim kröfum sem við gerum til lagasetningar. Í því sambandi verð ég að geta og minnast hér á — ég gæti talað um þessi atriði endalaust vegna þess að mér er mjög annt um að við vöndum okkur hér í þessu húsi.
Það er ekki svo langt síðan ég fékk svar frá atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn minni um framkvæmd laga um opinberar eftirlitsreglur sem varðaði einmitt undirbúning lagasetningar. Þar segir, með leyfi forseta:
„Í dag eru í gildi mun formfastari kröfur og reglur um gerð lagafrumvarpa og stjórnvaldsfyrirmæla en voru til staðar árið 1999 […]. Má þar nefna samþykkt ríkisstjórnarinnar, dags. 23. febrúar 2023, um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa og stjórnartillagna […]. Samkvæmt samþykktinni skal gera áform um lagasetningu og frummat á áhrifum áður en frumvarp er ritað“ — Hvar er þetta um vörugjöldin? Hvergi. — „ og skulu áformin og frummatið fara í innra samráð milli ráðuneyta sem skal almennt ekki gefast skemmri tími en tvær vikur til athugasemda.“
Allt miðar þetta að því að kalla eftir umsögnum, fá upplýsingar við undirbúning málanna.
„Að loknu innra samráði skulu áform um lagasetningu og drög að lagafrumvörpum fara í opið samráð til almennings og fyrirtækja í gegnum samráðsgátt Stjórnarráðsins í að lágmarki tvær til fjórar vikur.“ — Hér erum við að tala um áformin sjálf. Það er ekkert slíkt um vörugjöld. — „Sérstaklega skal leggja mat á áhrif frumvarpa (og reglugerða) og nauðsyn og markmið frumvarpa og reglugerða skýrt dregin fram […]. Að loknu samráði ber að tilgreina hvað þar hafi komið fram og hvaða breytingar hafi verið gerðar […].
Í 12. gr. þessarar samþykktar ríkisstjórnarinnar er sérstaklega vikið að mati á nauðsyn reglnanna og áhrifamatsins sjálfs. Ekkert af þessu var gert. Frumvarpið sjálft, eða drög að frumvarpinu um vörugjöldin, fór aldrei inn í samráðsgáttina. Það sem verra er, sem er ótrúlegt, er að frumvarpið sem var mælt fyrir 15. september og umsagnarbeiðnir voru sendar út þá var auðvitað ekki verið að kalla eftir umsögnum um þessar tillögur, þær voru ekki til. Allt er þetta svo illa undirbúið og ég tel, eins og er held ég öllum orðið augljóst, að þessar tekjur sem frumvarpið átti að skila verði ekki jafn háar og áformað var en áhrifin hins vegar umtalsverð. Allt er þetta einhvern veginn sama marki brennt.
Undanfarna daga höfum við verið að ræða um kílómetragjaldið sem líður líka fyrir þessi vinnubrögð meiri hlutans. Það er ótrúlegt að fara að setja álögur á almenning með svo skömmum fyrirvara, jafnvel þegar fyrirtækin í landinu eru búin að verðleggja þjónustu sína og selja hana og geta ekki brugðist við með öðrum hætti en að taka höggið á sig, mörg þessara fyrirtækja bera það ekki, geta ekki ráðið við það, eða þá einhvern veginn að fara að betla bætur frá eigin viðskiptamönnum. Það gengur illa og er ekki góð leið til að stunda viðskipti, allra síst ef menn ætla að gera það til lengri tíma.
Ég tek undir þessa gagnrýni á verklagið og vinnubrögðin hjá þessum meiri hluta. Eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir nefndi hlýtur lagaskrifstofa þingsins að hafa eitthvað um þetta að segja af því að við viljum ekki vinna hlutina svona.
Ég sé að tími minn er að klárast. Ég gæti auðvitað talað töluvert lengur um þetta allt saman en grundvallaratriðið er auðvitað þetta: Við þurfum einfalt skattkerfi og lága skatta. Það er grunnforsendan fyrir öflugu atvinnulífi og þannig reisum við stoðir fyrir velferðarkerfið sem við viljum hafa og erum stolt af því að njóta, hvort heldur sem það er fyrir okkur sjálf eða samborgara okkar sem þurfa á því að halda. Skattkerfið á ekki að draga úr framtaki fólks og fyrirtækja heldur ýta undir framtakssemi og nýsköpun.