breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Leiðrétting, tökum til, ræsum vélarnar, skoðum verkin. Það er undir þessum frösum sem við ræðum fjárlög og bandorm þar sem vöxturinn er 143 milljarðar kr. Við skulum skoða verkin: Skattahækkanirnar einar og sér eru nálægt 28 milljörðum kr. Eins og ég sagði áðan er vöxturinn 143 milljarðar kr. og skattahækkanirnar einar og sér 28 milljarðar kr., frú forseti.
Hvernig rímar þetta við það sem ég var að lesa upp? Tökum til, leiðréttum, ræsum vélarnar, skoðum verkin. Við skulum skoða verkin aðeins betur, frú forseti. Leggjum þá til hliðar á meðan alla blaðamannafundina, allar glærusýningar, öll fögru fyrirheitin, öll leikstýrðu myndböndin, alla PR-mennsku og skoðum bara hvað ríkisstjórnin hefur verið að gera síðan hún tók við og hverju hún er að bæta við núna. Það er öllum ljóst hvað gekk á hér síðasta vor og sumar; þar var tónninn gefinn. PR-mennskan í því reyndist ríkisstjórninni reyndar ekkert sérstaklega erfið því að það tókst að mála þá skattahækkun upp sem einhvers konar leiðréttingu, sem þá var tískuorðið, gagnvart ríkum og vondum útgerðarmönnum sem voru að arðræna íslenska þjóð.
Svo er haldið áfram. Nú nýlega fengum við tiltölulega gott yfirlit inn í þingið yfir þann þátt útgjalda sem kallaður er loftslagsgjöld, og eru náttúrlega ekki annað en loftslagsskattar, en við eftirgrennslan hefur gengið mjög illa að fá útlistað hvert þessir peningar fóru. Það tókst aðeins að gera grein fyrir agnarlitlum hluta af öllum þeim milljörðum. Hér erum við í raun að ræða innan þessa bandorms einn þessara liða sem eru vörugjöldin. Eins og aðrir liðir sem ég ætla að renna hér yfir, frú forseti, á þeim stutta tíma sem við höfum til að fara yfir málið hérna, hefur það áhrif á fleiri en þá sem ætla að kaupa bíl. Það er mikil einföldun á umræðunni, fyrir utan auðvitað það sem hefur áður verið nefnt hér að þetta breytir hegðun fólks; þeir sem voru að hugsa um að kaupa bíl á næstunni eða eru í þeirri atvinnustarfsemi að þurfa að vera að kaupa bíla drifu auðvitað í því. Þessir 7,5 milljarðar sem alls ekki má skoða betur frekar en kílómetragjaldið af því að þá fellur stöðugleikareglan — ég held reyndar að hún hangi á brúninni. Ég held að svigrúmið í fjárlögunum sé upp á 28 millj. kr. Það er bara svona svipað og lítið fyrirtæki. Við erum komin alveg þangað í útgjaldaaukningunni, frú forseti.
Ég hafði orð á því strax í upphafi, þegar var verið að ræða þessa stöðugleikareglu, að hún myndi ekki hemja vöxtinn, það væri af og frá. Ef ríkisstjórnin vildi eyða meira fé þá myndi hún bara hækka skatta og þess vegna uppnefndi ég þessar reglu skattareglu og það hefur raungerst. Til að hanga undir eigin reglu þarf þessi ríkisstjórn að hækka skatta á öllum sviðum, liggur mér við að segja. Vörugjöldin, eins og ég sagði, upp á 7,5 milljarða sem mun líklega valda hækkun á litlum bíl eða jepplingi um 15% myndi ég áætla. Lítill jepplingur myndi þá kannski hækka um 1 til 1,5 millj. kr. og þetta fer allt inn í vísitölu. Hins vegar er veikleikinn í þessu sá að það er allt sem bendir til þess að þetta muni ekki skila sér. Þá er nú stöðugleikareglan fallin hvort eð er því hún stendur bara á pappír. Hún þekkir ekki mannlega hegðun. Hún er hugarfóstur sem lítur vel út á blaði en ýtir undir skattahækkanir og sér ekki fram í tímann.
Það er hækkun á vinnuvélar en það er líklega með það eins og margt annað sem hér hefur verið haldið fram, það er líklega um skattahækkun að ræða sem hefur ekki áhrif, því að það er uppfinning þessarar ríkisstjórnar og kom fram í vor sem leið að það hefur verið fundin upp leið til að hækka hér skatta án þess að það hafi áhrif. Hækkun á minni hópferðabíla. Afsláttur frá upphaflegu plani fyrir tekjur akstursíþrótta — hugsið ykkur þessa orðaleikfimi. Í þessum ormi er ríkisstjórnin farin að veita akstursíþróttunum afslátt. Afslátt af hverju? Afslátt af skatti sem þau bjuggu til? Hún lækkaði hann reyndar mjög lítillega, um 10%. En það er þó betra en ekki neitt. En það er rétt að hafa það í huga að þetta er auðvitað ekki afsláttur. Ef hún byrjar á því að búa til eitthvert nýtt dæmi, býr til nýjan kostnaðarlið og segir svo að hann sé á tilboði, að hún veiti afslátt, þá heitir það að hækka skatta. Það heitir ekki afsláttur, það heitir að hækka skatta. Akstursíþróttasamfélagið mun finna fyrir þessu.
Þessi nálgun sem var hér í umræðunni um kílómetragjaldið, að það væri einhver stefna að það væri 1,7% af vergri þjóðarframleiðslu, eða það sem við ættum að temja okkur að segja, af heildarþjóðarframleiðslu, er auðvitað bullnálgun. Er einhver sem trúir því að þjóðarframleiðslan myndi hríðfalla ef þessi gjöld yrðu lækkuð? Nei, frú forseti. Það er eingöngu hægt að búa sér til svona vinnureglu þegar það er vöxtur. Öðruvísi er ekki hægt að réttlæta hana. Það trúir enginn á að hún haldi í hina áttina. Leigubílarnir, innviðagjaldið margnefnda sem upphaflega átti reyndar að vera 2.500 kr. og síðasta ríkisstjórn, a.m.k. þeir fulltrúar hennar sem sitja hér enn, hafa allir gengist við því að hafa gert mistök í því máli og sjá eftir þessu, enda voru áhrifin augljós. Það var enn eitt dæmið um að það er hægt að búa til skatttekjur í skjölum, í pappírum, í áætlunum en svo kemur bara allt önnur niðurstaða vegna þess að fólk bregst við, fyrirtæki bregðast við og ekki bara íslenskt fólk eða íslensk fyrirtæki, erlend fyrirtæki bregðast við því sem við gerum hér.
Þó að það sé ekki gott að venja sig á að vera mikið í stóryrðunum, því þá er hætt við að maður fari að hljóma eins og maðurinn sem kallaði úlfur, úlfur, þá er nú samt óhætt að segja að þessar áætlanir ollu hruni í bókun skemmtiferðaskipa til Íslands, ekki bara smávægilegu bakslagi heldur hruni. Þar af leiðandi skila tekjurnar sér ekki. Ríkisstjórnin boðaði aðgerðir í þessum efnum og hugðist fara með gjaldið niður í 2.000 kr. Við skulum athuga að hér er munur á milli gistináttainnviðagjalds á skemmtiferðaskip og gistináttagjalds í landi, því í landi er það, ef ég man rétt, 800 kr. á herbergi, innviðagjaldið er á hvern einstakling. Þegar það var alveg ljóst að þessi umræða ríkisstjórnarinnar um að lækka innviðagjald niður í 2.000 kr. hafði engin áhrif þá ákvað ríkisstjórnin að fara niður í 1.600 kr. Hvers vegna niðurstaðan varð 1.600 kr. veit ég ekki. Ég veit ekki hvaða reikniaðferð hjálpaði þeim að komast að þeirri niðurstöðu að þar væru sársaukamörkin, þá myndi tjónið ekki raungerast. Hið augljósa var að það þurfti að senda skýr skilaboð út í heim, til þeirra aðila sem eru að selja ferðir til Íslands og hafa hjálpað til við að byggja upp ferðaþjónustu hringinn í kringum landið, um að þessu væri frestað í að lágmarki tvö ár en þá kæmi ákveðið gjald sem hægt væri að skoða hvert ætti að vera. En þá gátu fyrirtækin líka sett það inn í viðskiptamódelið sitt og inn í verðlagninguna. Í þessu samhengi er ágætt að hafa í huga að ferðaþjónustan sem er að verða fyrir þessu höggi, og þar af leiðandi samfélagið allt, skaffaði um einn þriðja af útflutningsverðmætum Íslands á síðasta ári eða um 622 milljarða kr. Og fólk leikur sér með svona verkefni.
Varðandi vörugjöldin, og ég tala nú ekki um í bland við kílómetragjöldin, þá er rétt að halda því til haga í þessari umræðu, undir frösunum að þeir verði að borga sem nota og það vanti peninga í vegakerfið o.s.frv., að við höfum árum saman, ef ekki áratugum saman, tekið mun meira af ökutækjum en við höfum skilað til samgöngumannvirkja, þ.e. að við sækjum mun meiri tekjur til fólksins sem er að nota samgöngukerfið, sem eru allir, en við skilum til baka til uppbyggingar á samgöngukerfinu og þar hefur verið ginnungagap um langa hríð.
Menn hafa slegið um sig í nýkynntri samgönguáætlun með að þar sé gríðarlegt átak og mikil hækkun. Stærstur hlutinn þar er settur fram og birtist fólki sem hækkun vegna þess að þetta er öðruvísi sett fram en fyrri ríkisstjórnir hafa gert. Nú er framlagið til samgönguáætlunar í gegnum Betri samgöngur á höfuðborgarsvæðinu inni í þessari tölu en var sér áður. Kílómetragjaldið sem við erum búin að ræða hér ítarlega í tvo eða þrjá daga, það er áhugavert að skoða það gjald í einu ljósi sem ég held að hafi lítið komið fram. Hæstv. dómsmálaráðherra hefur gortað sig af því í umræðu um útlendingamál að verið sé að afnema séríslenskar reglur, sem er reyndar jákvætt svo að því sé haldið til haga, og þá fær maður á tilfinninguna að við viljum ekki vera með einhverjar séríslenskar reglur. En það er öðru nær þegar kemur að fyrirtækjunum og fólkinu okkar í landinu. Kílómetragjaldið eða kílómetraskatturinn er séríslensk leið; hvergi á byggðu bóli í allri víðri veröld er þetta kerfi í notkun eins og það er sett fram hér. Það skyldi þó ekki vera einhver ástæða fyrir því, frú forseti? Eða eru bara í þessu, eins og í því sem ég nefndi áðan, allir nema við svona vitlausir? Það er séríslenskt, eins og það er séríslenskt að skattar hafi ekki áhrif.
Ég minni aftur á að þetta er ekki bara högg fyrir atvinnulífið, einstaklingana eða landsbyggðina heldur er þetta gríðarlegt högg fyrir ferðaþjónustuna sem, eins og ég sagði áðan, skilaði 622 milljörðum kr. til ríkisins og u.þ.b. einum þriðja af öllum útflutningsverðmætum landsins, hvorki meira né minna. Alltaf er rökstuðningurinn sá sami. Það þarf meiri pening í vegina. Við getum farið áratugi aftur í tímann þegar svokallað bifreiðagjald var sett á; það var rökstutt nákvæmlega eins, til átaks í vegagerð. Síðan er búið að finna upp hvern skattinn á fætur öðrum til að ráðast í átak í vegagerð. Kolefnisskatturinn er eitt af því og nú er kílómetraskatturinn eitt af því. Þessi gjöld hafa verið fjölmörg í gegnum tíðina en eftir sem áður er ástandið í samgöngumálunum ekki nógu gott. Það er ekki vegna þess að tekjurnar eða skattarnir hafi ekki verið nógir. Það er vegna þess að þeim hefur ekki verið skilað. Ég geri mér fulla grein fyrir því, frú forseti, að markaðir tekjustofnar eru ekki lengur hluti af lögum um opinber fjármál. En það gefur augaleið að þegar rökstuðningurinn fyrir skattahækkun er að ráðast í eitthvert ákveðið verkefni og ef ekki er ráðist í verkefnið þá eru það svik. Það er hægt að leika sér með þessi orð en þegar þú sækir fé til einhvers til ákveðinna verka og skilar aldrei verkinu þá eru það svik, alveg sama hvaða nöfn þú gefur því.
Hvað fáum við núna fyrir þessa fyrirhuguðu skattahækkun? Hvað fá íbúar á Austurlandi fyrir þessa skattahækkun? Þeir fá fögur fyrirheit, nóg er af þeim. Það er enginn skortur á fögrum fyrirheitum gagnvart Austurlandi. Það er hins vegar verulegur skortur í fjárlögum og í tímalínu samgönguáætlunar er alveg ljóst að þessi fögru fyrirheit eru ekki gefin fyrir þessa ríkisstjórn. Tímalínan er augljós og öllum opin, það geta allir skoðað nýkynnta samgönguáætlun. Hún er fögur fyrirheit fyrir næstu eða þarnæstu ríkisstjórn, hvað hún ætlar að gera fyrir fólkið fyrir austan — ekki þessi ríkisstjórn, þótt ég fagni vissulega nýrri brú yfir Sléttuá, það er gríðarleg þörf á að endurnýja þá brú. Hringtorg á Egilsstöðum er örugglega ágætisverkefni. En samgönguáætlun gagnvart Austurlandi er svo afturþung að hún kemur þessari ríkisstjórn bara hér um bil ekkert við.
Þetta er það sem fólk fær fyrir ný gjöld á ný gjöld ofan. RÚV, Ríkisútvarpið okkar sumra, fær meira. Úrvinnslugjald hækkar. Samsköttun hjóna, hún hefur talsvert verið rædd, m.a. hér í dag, og fulltrúar stjórnarmeirihlutans meira að segja komið hér og talað um það að verja tilvist samsköttunar hjóna sé einhvers konar leið til að verja breiðu bökin, efstu tekjutíundina. Ég hef ekki lagst í þessa úttekt vegna þess einfaldlega að mér kemur það ekkert við, finnst mér sem einstaklingur, en við þurfum sem pólitíkusar að taka afstöðu til þess. Það er hins vegar staðreynd að hjón bera sameiginlega skattalega ábyrgð og ættu þess vegna að njóta sameiginlega skattalegra fríðinda. Þetta er svipuð aðgerð — og nú dettur mér bara í hug þegar verðtrygging launa var afnumin en verðtrygging lána skilin eftir. Það er ekki hægt að gera annað en ekki hitt. Af því munu aðeins hljótast vandræði og það er eins í þessu máli er varðar samsköttun hjóna. Ef þú tekur fríðindin í burtu en skilur lagalegu ábyrgðina eftir þá er það mjög ósanngjörn og einhliða aðgerð sem snertir u.þ.b. 30.000 Íslendinga. Eitt hefur gengið vel undanfarin ár og það er til að mynda leyfi til að nýta séreignarsparnað til að greiða inn á lánin. Stendur til að leyfa það áfram, frú forseti? Nei.
Ég hef aðeins komist í gegnum einn minnismiða af nokkrum þannig að ég reikna með að ég muni blanda mér aftur inn í umræðuna hér, frú forseti.(Forseti hringir.) En tímans vegna verð ég að láta þetta duga í bili.