breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir yfirgripsmikla og góða ræðu. Þetta hefur einmitt áhrif svo víða, þessar skattahækkanir sem við fjöllum um hér, og afleiðingarnar eru svo miklar. Það hryggir mann svolítið hér í umræðunni hjá ríkisstjórnarflokkunum hvað gert er lítið úr afleiðingunum og alltaf reynt að smætta afleiðingarnar niður á einhver fyrirtæki sem geta alveg borgað meira eða eitthvað fólk sem er með hærri tekjur en aðrir eða býr annars staðar en aðrir, að þau geti bara alveg tekið þessu, og gert út á þessa öfundsýki og annað slíkt, en kannski verða fyrir afleiðingunum þeir sem síst skyldi. Því langar mig að taka þetta einmitt upp við hv. þingmann sem var að tala um afleiðingarnar sem íbúi í Norðurþingi af því að Norðurþing er eitt það sveitarfélag og landshluti sem er að takast á við mikinn samdrátt og áföll í atvinnulífinu eins og er nú bara að gerast alls staðar um landið. Þar er stóriðjan, ferðaþjónustan, landbúnaðurinn og fleira undir. Því langar mig að spyrja hv. þingmann: Hvernig skilaboð eru þetta til íbúanna og atvinnurekenda, allar þessar álögur? Hvernig leggst þetta á fólk á svæði sem vantar súrefni en fær þau skilaboð að á meðan þrengir að þurfi það að borga meira? Er þetta vænlegt til árangurs? Og eins og ég heyrði að hv. þingmaður kom líka inn á: Hvað eru þau að fá í staðinn? Það er ekkert hægt að sjá það. Núna þarf atvinnulífið og svæði eins og Norðurþing viðspyrnu en hana er ekki að sjá hér heldur eru hér frekari álögur ofan á fyrri áföll.