157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[17:06]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðilegar spurningar. Þetta eru auðvitað, hv. þingmaður, skelfileg skilaboð inn í það verkefni sem bíður. Af því að hv. þingmaður gerði mér þann greiða að gefa mér tækifæri til að tjá mig sérstaklega um Norðurþing þá eru þessi skilaboð auðvitað háalvarleg því þar er verkefnið ærið. Áfallið sem þar hefur nýlega dunið yfir er af þeirri stærðargráðu að ég held að þetta sé ígildi þess að 4.200 manns hefðu misst vinnuna í Reykjavík hér um bil á nokkrum vikum. Fólk getur rétt ímyndað sér um hvað væri verið að tala hér í þingsalnum ef það hefði gerst í Reykjavík að 4.200 manns hefðu misst vinnuna. Það er þó ein atvinnugrein, auðvitað eru þær fleiri, en ein mjög stór í Norðurþingi sem fór að vaxa á hárréttum tíma, fór að vaxa í kjölfar efnahagshrunsins á sínum tíma, gerði það auðvitað víðar um landið. Nú hefði maður haldið að helsta traustið sem menn bera til að brúa bilið í Norðurþingi frá þessu áfalli sem við urðum nýlega fyrir uns við náum aftur viðspyrnu og byggjum upp annaðhvort eitthvað nýtt eða tekst að koma hinu af stað aftur, nema hvort tveggja sé, sé einmitt að það er öflug ferðaþjónusta á svæðinu, gríðarlega öflug. Ég tel meira að segja að í hugum margra sé Húsavík hvalaskoðunarhöfuðborg Íslands en við erum auðvitað háð samgöngum og ef við skattleggjum samgöngurnar út í eitt þá hefur það auðvitað áhrif á hegðun ferðamanna sem hefur þá áhrif á miðasölu í hvalaskoðun, veitingasölu á veitingastöðum o.s.frv. Þessi skilaboð eru afleit, hv. þingmaður, en ég er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að koma því að.