breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Þetta er einmitt kjarni málsins, að afleiðingarnar eru svo fjölbreyttar og við sjáum hvernig skattar skaða. Það er einmitt það sem við þurfum ekki núna þegar þessi samdráttur er, heldur er mikilvægast að fyrirtækin fái eitthvert súrefni til að byggja upp, fjárfesta, framkvæma og ýta undir hegðunina sem hefur verið í svo langan tíma með tilkomu bílaleigna. Hér er oft talað illa um bílaleigur, að þær skili svo miklum hagnaði og þetta séu allt svo stór og rík fyrirtæki og annað slíkt, en núna þegar þær fá bæði vörugjöldin og kílómetragjaldið þá er einmitt svæði eins og Norðurþing í mikilli hættu af því að við höfum verið að berjast fyrir því að dreifa ferðamönnum, dreifa þeim. Það kom fram hér á ferðaþjónustudeginum í gær, þegar skattspor ferðaþjónustunnar var kynnt, að þegar bílarnir voru ekki leigðir með einhverjum hámarkskílómetrum heldur bara 100 km á dag, þá óku ferðamennirnir bara 100 km á dag. Þannig að ef við ætlum að fara að setja kílómetragjald á núna þá efast ég um að margir ferðamenn komist alla leiðina á Húsavík í hvalaskoðun. Fyrir utan það að allar krónutöluhækkanirnar hafa áhrif á veitingastaðina sem eru bara rétt opnir yfir hásumarið og lengi mætti telja. Ruðningsáhrifin eru því svo mikil og því er mikilvægt að átta sig á því að þegar þið haldið að þetta séu einhver rík fyrirtæki í höfuðborginni þá eru það oftast fyrirtækin úti á landi og einstaklingarnir úti á landi sem þetta kemur miklu verr við og líka þá sem minna hafa milli handanna.