breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Þetta er allt saman hárrétt sem kom fram í máli hv. þingmanns. Þetta var ágæt upptalning. Við vorum auðvitað að vísa til áfallsins á Bakka þegar við vorum að tala saman áðan en það er bara eitt af tveimur stórum. Hitt er auðvitað innviðagjaldið. Það er ekkert sambærilegt hvað það selst mikið af mat í Norðurþingi, hvort sem það er á Húsavík eða í Mývatnssveit, eða hvað það eru margir bílaleigubílar á ferðinni eða hvað það seljast margir miðar í hvalaskoðun eftir því hvort það er skemmtiferðaskip í höfnum á Akureyri og Húsavík eða ekki. Þú þarft ekki niður á höfn til að athuga hvort það sé skip, þú sérð það bara á bænum. Svo hefur maður auðvitað fengið þetta margsinnis staðfest hjá fólki í atvinnulífinu. Og þá gleymast einmitt oft ruðningsáhrifin. Þetta er ekki bara fólk í ferðaþjónustu sem vinnur við að sinna ferðaþjónustu. Bátarnir bila, það þarf að gera við þá. Það eru vélvirkjar, vélsmiðir, rafvirkjar, trésmiðir og bílafloti í fyrirtækjum sem þarf að sinna. Það er húsnæði í þessum fyrirtækjum sem þarf að sinna og þá koma einmitt þessir sömu aðilar, rafvirkjarnir, smiðirnir og pípararnir, þannig að ruðningsáhrifin af því að ætla að hjóla í eina risastóra atvinnugrein, útflutningsverðmæti hennar voru 622 milljarðar eða einn þriðji af útflutningsverðmætum Íslands á einu ári, eru ekkert smáræði. Ég get nefnt bara hestaleigu einhvers staðar í nágrenni við höfn. Það skiptir hana verulegu máli hvort það kemur skemmtiferðaskip eða ekki. Hv. þingmaður, ég er því algerlega sammála að ruðningsáhrifin eru mikil. Þetta er bæði vont og vanhugsað.