breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða og innblásna ræðu um vörugjöldin sem ég veit að hv. þingmaður hefur miklar og sterkar skoðanir á, eins og fleiri málum, kílómetragjaldi o.fl. Ég tek undir áhyggjur hv. þingmanns. Þetta er ekki alveg eins og við hefðum gert það, að lágmarki.
Það sem mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann um í þessu andsvari mínu, vegna þess að ég veit að hv. þingmaður hefur töluverða þekkingu á því sviði, eru áhrif vörugjaldahækkunarinnar á sendibíla og minni vörubíla. Nú er verið að gera þær breytingar að ökutæki sem eru ætluð til vöruflutninga og eru yfir 5 tonn að heildarþyngd og allt að 12 tonnum skuli bera 20% vörugjald. Eins og við höfum bent á hér í okkar ræðum held ég að það sé öllum ljóst að sendibílstjórarnir, sem eru oftar en ekki einyrkjar eða að vinna á einhverjum stöðvum, eru ekki að fara að taka þennan kostnaðarauka á sig heldur fer þetta væntanlega út í verðlagið. Sama má segja um leigubílana. Þar er kveðið á um lægri heimild til álagningar vörugjalds á leigubifreiðar til fólksflutninga. Það ákvæði er sömuleiðis verið að taka brott þannig að þau munu bera vörugjöld sem þýðir náttúrlega bara hærra innkaupsverð á þessum tækjum sem væntanlega þýðir hvað, og það er það sem mig langar að spyrja hv. þingmann að: Hvaða áhrif heldur hann að þetta muni hafa?