breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Ég hef örlítið verið að setja mig í þá stöðu að reyna að spá fyrir um áhrifin sem verða klárlega til staðar. Þetta hefur einhverjar afleiðingar. Í tilfelli til að mynda leigubifreiðanna, ef við tökum þær sem dæmi, þá er þetta lítill rekstur, þetta er maður og bíll og svigrúmið til að taka á sig breytingar af þessum toga er ekkert, ekki bara lítið heldur ekkert. Og hvað gerir aðili sem er að selja þjónustu og fær á sig meiri byrðar og hefur ekkert svigrúm? Hann hefur bara eina leið, hugsanlega tvær. Hann getur auðvitað hætt en ég reikna ekki með að það sé það sem menn hafa séð fyrir sér í hæstv. ríkisstjórn og það sé það sem þeir voru að vona að gerðist. Þeir voru væntanlega að vonast eftir meiri tekjum. Það verður að láta kúnnann borga meira. Það er ósköp einfalt. Þetta endar alltaf á sama stað, hvaða nöfnum sem við nefnum þetta. Það er eins með sendibílinn, hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson. Það eru ekki stóru dæmin, litlir aðilar í akstri í þessum tölum sem hv. þingmaður nefndi, þótt þeir fari yfir 5 tonn en undir 12. Þetta eru ekki stóru aðilarnir. Svigrúmið þarna er lítið. Það er bara ein leið, hv. þingmaður, í þessu samhengi líka og það er að hækka gjaldið. Kúnninn borgar meira.