breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið sem kom mér ekkert á óvart og var nú á engan hátt ætlun mín hér í fyrra andsvari að reyna að koma hv. þingmanni í klemmu. En hafandi þekkt hv. þingmann í töluverðan tíma þá veit ég að hann býr yfir ákveðinni spádómsgáfu sem ég var að vonast til þess að hann myndi leysa úr læðingi hér í ræðustól þingsins en eitthvað var hann nú feiminn við að láta ljós sitt skína. Punkturinn var hins vegar sá, og það var kannski það sem ég var að leitast eftir, virðulegur forseti, og það sem við höfum verið að segja ítrekað í undanförnum ræðum, hvort sem það er í vörugjöldunum, kílómetragjöldunum eða í öðrum þeim skattahækkunarfrumvörpum sem við höfum verið að fjalla um, er að þetta mun hafa afleiðingar. Fólk mun finna fyrir þessu. Að sjálfsögðu virkar hagkerfið með þeim hætti að einhver borgar á endanum. Við sjáum það bara að þegar launin hjá smiðnum hækka þá hækkar útseld vinna. Þegar sendibíllinn hjá sendlinum hækkar þá mun verðið á útseldri vinnu hækka. Það er eins hjá leigubílum og það verður eins í kílómetragjaldinu varðandi vöruflutninga, virðulegur forseti, eins og við höfum bent á. Það er því alveg ljóst að með þessum frumvörpum hér, þessum fjölmörgu frumvörpum með einhverjum 30 milljarða kr. skattahækkunum, að á endanum mun einhver borga. Og hver borgar? Það er almenningur í landinu, þannig að allt tal um það að ætla ekki að leggja skatta á venjulegt fólk eða almenning er fásinna.