157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[17:20]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ljómandi gott „rant“ eða vangaveltur. Ég var sammála hverju orði sem þar kom fram nema því að ég hafi eitthvað verið lítill í mér áðan. Ég hins vegar misskildi spurningu hv. þingmanns. Ég hélt að hann væri að ætla mér að koma með mun nákvæmari útreikninga á afleiðingunum en þá almennu yfirlýsingu sem ég gaf en virtist vera það sem hv. þingmaður var í raun að sækjast eftir, þ.e. þótt hv. þingmaður hafi tekið þetta tiltekna dæmi er spurningin í sjálfu sér algild yfir þessar hækkanir, þ.e. hækkun á álögum, sköttum og gjöldum, alveg sama hvað við köllum þetta og hvaða límmiða við setjum á hvert og eitt, til að mynda afsláttinn sem meiri hlutanum er tíðrætt um núna á styrkinn til mótorsportsíþróttarinnar. Þar stæra þau sig af því að þau séu að veita ákveðinn afslátt af reyndar skatti sem þau voru sjálf að ákveða að hækka og setja upp í einhverjar 100 milljónir og bjuggu svo sjálf til afslátt upp á 10 milljónir, það er kannski eina undantekningin. Eftir stendur þó að það er verið að hækka skatt. Í dæminu sem hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson tók er nákvæmlega sama lögmálið. Við ræddum þetta líka í veiðigjöldunum í vor og sumar. Við höfum rætt þetta í kílómetragjaldinu. Það er ekki til neinn séríslenskur veruleiki þar sem við getum hækkað skatta, jafnvel stórfellt, hvort sem fyrirtækin eru lítil eða stór eða á heimilin, án þess að það hafi áhrif. Ég tek undir með lokaorðum hv. þingmanns að að halda öðru fram er fásinna og ég ætla að bæta við að það er dónaskapur við þann sem verið er að tala við.