breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Hér erum við að ræða um margvíslegar hækkanir á gjöldum og sköttum. Það er ákveðin heildarmynd sem fer að teiknast upp af nálgun hæstv. ríkisstjórnar í ríkisfjármálunum. Nálgunin sem var boðuð fyrir kosningar, m.a. af hálfu Samfylkingar, en kannski af meiri þrótti af hálfu Viðreisnar, var sú að hér stæði ekki til að fara í skattahækkanir á almenning, eins og það var orðað. Síðan var farið í það þegar ríkisstjórnin tekur við og fer hægt og rólega að rúlla út sínum aðgerðum að endurskilgreina það hvað felst í almenningi. Það virðist mega sífellt teygja það fram og til baka og þrengja það mengi sem almenningur fellur undir þannig að restina megi maður skattleggja. Það kemur manni svo sem ekkert á óvart það upphlaup sem hefur orðið í þinginu á síðustu dögum af hálfu Viðreisnarmanna þar sem þeir taka upp ummæli sem ég viðhafði í umræðu um innflytjendamál, um heildarsýnina í innflytjendamálum til næstu áratuga, að við þyrftum að reyna að ná endanlegri stjórn á þessu áður en þetta færi úr böndunum frekar en þegar er orðið og að þar þyrftum við að sjálfsögðu líka að líta til Evrópska efnahagssvæðisins, hvernig innflytjendastraumurinn þaðan er að reynast okkur út frá ýmsum þáttum í hagkerfinu og með hvaða hætti við gætum temprað hann þegar þar að kæmi, og það kemur ekki á óvart að Viðreisnarmenn reyni að grípa slíkt á lofti og hjóla beint í að halda því fram að með slíkum vangaveltum um framtíðarhagsmuni Íslendinga séu menn á einn eða annan hátt að reyna að grafa undan EES-samstarfinu. Það er vegna þess að Viðreisnarmenn skammast sín líklega fyrir það að t.d. bara í þessari viku eru þeir að fara fram með 11 milljarða króna skattahækkun á bíla og ökumenn, sem eru almenningur þannig að það sé tekið fram, og þar með hefur kosningaloforðið verið svikið.
Við slíkar aðstæður þarf ekki að koma á óvart að Viðreisnarmenn reyni að beina umræðunni annað með útúrsnúningum á orðum okkar í stjórnarandstöðunni og í Miðflokknum. Ekki aðeins það heldur sér maður líka í fréttum að hæstv. fjármálaráðherra er farinn að bjóða til sín áhrifavöldum í kaffi vegna þess að honum líður kannski ekki sérlega vel með umræðuna sem er úti í samfélaginu sem er á þá leið að fólki misbjóði þessar skattahækkanir á nær öllum sviðum. Fólk tjáir það á netinu og það fer á flug vegna þess að aðrir deila þeirri sýn að þetta sé kannski ekki leiðin sem þarf að feta fram á við gagnvart almenningi á þessu stigi máls hér á Íslandi, að hækka bara skatta í sífellu og gera ráð fyrir að þannig getum við leyst málið til frambúðar í stað þess að taka til í ríkisrekstrinum endanlega. Þetta er bakgrunnur þeirrar umræðu sem fer fram í tengslum við þessar gjaldskrárbreytingar og skattahækkanir í tengslum við fjárlögin núna árið 2026.
Í þessu frumvarpi er af ýmsu að taka. Við getum beint sjónum að einstaka þáttum. Ég nefni kannski einkum bara í fljótu bragði, vegna þess að mín áhersla hefur verið núna í haust, og verður það áfram, á hagsmuni barnafjölskyldna, að mótmæla þessari breytingu á samsköttun, þessu rótgróna fyrirkomulagi í því að leyfa hjónum að færa tekjur á milli skattþrepa ef annar aðilinn er með mun hærri tekjur en hinn. Þetta getur verið sparnaður eða skattalækkun um einhverjar 400.000 kr. á ári í ákveðnum tilvikum. Ef annar aðilinn er með mun hærri tekjur en hinn þá getur þetta reynst fólki í raun og veru ákveðið sanngirnismál að litið sé á fjölskylduna sem eina einingu í skilningi skattsins. Þetta á að afnema, m.a. á grundvelli þess að það sé ekki æskilegt að annar aðilinn sé með hærri tekjur en hinn á heimilinu. Þetta eru meint kynjajafnréttissjónarmið sem hæstv. fjármálaráðherra hefur vísað til í þessari umræðu sem er, enn og aftur, hluti af stærra verkefni, að því er virðist, af hálfu ríkisvaldsins að handstýra því hvernig heimilishaldi landsmanna er háttað.
Þetta sjáum við líka í fæðingarorlofsmálum þar sem ber svo við núna að hver umfjöllun rekur þá næstu um gífurlegt óréttlæti sem fólk mætir í fæðingarorlofskerfinu. Óréttlætið á sér rætur í forræðishyggju öfgakennds femínisma, má segja, í þessu tilviki, þar sem önnur sjónarmið eru látin víkja og bara þau sjónarmið að ríkisvaldið eigi að stjórnast í því hvernig fjölskylduhaldið er taka öll völdin. Þetta er í boði Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins, hæstv. félagsmálaráðherra sem segir í orði kveðnu að hann sé á móti óréttlætinu. En maður á sannarlega eftir að sjá það frá ríkisstjórninni að hún vilji breyta þessu óréttlæti sem ríkir nú í fæðingarorlofskerfinu þar sem fjölskyldum er ekki leyft að skipta þessu eins og þeim sýnist. Ég vek athygli á þessu í þessari sömu umræðu og um skattþrepin og samsköttunina vegna þess að þetta eru skyld mál. Við höfum hvatt til þess að fallið verði frá þessum áformum um að afnema samsköttunina. Hún er prýðileg og er eitthvað sem nýtist fólki á ólíkum stigum, á ólíkum tímapunktum á þeirra ævi. Það getur hent allar fjölskyldur að vera í þeirri stöðu að þetta geti reynst mjög gagnleg búbót og eðlileg sanngirni en ekki aðeins, eins og oft er trommað upp með, að þetta snúist bara um tekjuhæstu hópana. Það er ekki svo. Það er fjöldinn allur af fólki í margvíslegri aðstöðu sem þarf á þessu að halda og þetta hagnast þeim, ekki síst barnafjölskyldum þar sem börnin eru pínulítil og komast ekki á leikskóla, t.d. hér í Reykjavík, í boði Samfylkingarinnar, sama flokks og vill refsa fólki fyrir að skipuleggja heimilishaldið þannig að börnunum líði sem best.
Ég vísaði til þessarar 11 milljarða kr. skattahækkunar á bifreiðar og ökumenn. Hluti af þeim eru vörugjöldin sem er mjög brött hækkun á einu bretti, 67% hækkun, sem kemur niður á bifreiðaeigendum og fleytist út í verðlagið á bílum. Það er auðvitað óhjákvæmilegt. Þarna erum við einmitt að tala um hagsmuni barnafjölskyldna sem þurfa bíla og þurfa jafnvel að kaupa sér stærri bíla. Þetta er einfaldlega, og það er alveg ómögulegt að líta fram hjá því eða afneita því, hrein rukkun gagnvart því fólki inn í ríkiskassann. Þannig að ef menn eru að tala um að styðja við barnafjölskyldur þá eru þeir ekki að tala um að fara í þessa hækkun.
Hluti þessara hækkana á bifreiðaeigendur og ökumenn er í kílómetragjaldinu sem er, það verður að segjast, á þessu stigi máls gjörsamlega fáránleg aðgerð. Hún snýst um að í stað þess að leyfa þessum þremur, fjórum olíufélögum að innheimta gjald af bensínbifreiðum og dísilbifreiðum úti í umferðinni með því að þær borgi gjaldið þegar þær taka bensín, þrjú, fjögur olíufélög sem þurfa þá að innheimta þetta, þá er það verkefni fært yfir til tuga þúsunda, meira en hundrað þúsunda bifreiða úti í samfélagi þar sem allir þurfa að telja og kíkja á kílómetramælinn og halda utan um þetta sérstaklega. Ríkissjóður og ríkisvaldið þarf að fara að innheimta þetta út um allan bæ gagnvart fleiri hundruð þúsundum í stað þess að hafa þetta eins og þetta er fyrir aðeins þessa 3 milljarða sem vænt er að komi í ríkiskassann vegna þess en er alls óljóst að muni gera það og svo eykst stjórnsýslukostnaður með þeim hætti í þessu, bæði hjá hinu opinbera og svo auðvitað hjá fyrirtækjum, bílaleigum og öðru eins, þannig að maður efast um að þetta verði nettótekjuaukning þegar upp er staðið heldur aðeins auknar álögur á almenning. Þetta finnst mér augljóst og auðvelt að lesa út frá allri umfjöllun um þetta mál en hæstv. ríkisstjórnin neitar að horfast í augu við þetta, fer sínu fram.
Ég hef dregið saman nokkra áherslupunkta í þessu og ég býst ekki við að fara miklum mun dýpra í þetta en bendi aftur á þessa heildarmynd: Í fyrsta lagi að menn geri sér grein fyrir því í þessum hækkunum, sem nema um 28 milljörðum eins og þetta lítur út núna, að þær hafa áhrif á samfélag og atvinnulíf. Sannarlega lítur þetta út núna á blaðinu eins og tekjurnar geti hækkað. Vafalaust munu þær gera það í tilfelli ákveðinna skatta. En í öðrum sköttum þá óttast maður sannarlega, rétt eins og við höfum séð í tengslum við skemmtiferðaskipin, að menn hækki upphæðina, hækki prósentuna en minna komi í kassann vegna þess að umsvifin verða einfaldlega minni. Þá eru menn einfaldlega að vinna skaða frekar en gagn og ættu sannarlega að hugsa sinn gang, eins og ég ítreka í sambandi við kílómetragjaldið sem hér var til umræðu í gær og á síðustu dögum.
Að þessu öllu sögðu þá held ég að það sé óhætt að hvetja til þess að meiri hlutinn og ríkisstjórnin taki tillit til þeirra breytingartillagna sem við höfum komið fram með í nefndaráliti 1. minni hluta sem Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, hv. þingmaður, ritar undir. Þar bendum við í ríkisstjórninni á hvernig halda megi betur á fjölda atriða. Það er óskandi að tekið verði tillit til þessa. Hér eru sannarlega réttmætar áhyggjur af því að heildarskattporið svonefnda í ákveðnum málum endi á að lækka í stað þess að hækka. Þá er að sjálfsögðu betur heima setið en af stað farið.