157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[17:55]
Horfa

Viktor Pétur Finnsson (S):

Virðulegi forseti. Þið sem þekkið mig vitið að ég er kannski ekki eins og fólk er flest. Maður er heldur einkennilegur, getur verið það. Þessi ríkisstjórn talar um og hefur talað um frá upphafi að hún ætli ekki að hækka skatta á það sem hún kallar venjulegt fólk. Ég hef verið að spyrja mig svolítið og reynt að átta mig á því hverjir það eru sem eru venjulega fólkið sem á ekki að hækka þessa skatta á, vegna þess að útgjöldin eru að aukast um 143 milljarða á hverju ári. Það þarf einhvern veginn að ná þessum pening inn aftur til að auka þessi útgjöld. Þetta voru ekki útgjöld í fyrra en það á samt að eiga fyrir þessu og einhvern veginn þarf að sækja þessa 143 milljarða, eins og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson segir, sækja þetta fjármagn. Maður heyrir oft að það þurfi að sækja fjármagn eða auka aðhald á tekjuhlið eða hvað. Hvernig sækir maður 143 milljarða af þeim 1.600 milljörðum sem ríkið er að eyða núna? Það er gert með því að auka skatta og hækka skatta á fólkið í landinu. En þau hafa alltaf sagt að þau ætli ekki að hækka skatta á venjulegt fólk og þess vegna átta ég mig ekki alveg á því hvar þetta venjulega fólk er að finna. Það sem ég sé af þessu er að það er einungis verið að hækka skatta á fólk sem ég myndi telja vera hinn hefðbundna Íslending, venjulegt fólk.

Núna á að hækka skatta á streymisveitur úti í heimi, sem dæmi. Það er fólk bara eins og háskólanemar, ungt fólk. Í raun og veru held ég að hver einn og einasti Íslendingur sé með nokkurs konar aðgang eða greiði fyrir streymisveitu eða notkun á einhvers konar efni úti í heimi, hvort sem það er Netflix eða Amazon eða hvað sem það kallast, þá á að hækka gjöld á þetta. Það er gert með því að kalla þetta menningarframlag sem er ekkert annað en skattahækkun. Sömuleiðis er verið að troða inn núna að það eigi að skattleggja póstsendingar erlendis frá. Ef ég horfi á fólkið í kringum mig, ungt fólk, konuna mína, vini mína, fólkið í kringum mig — það á allt í einu að fara að skattleggja Netflix-ið sem þú horfir á á kvöldin og ASOS eða Ali-sendingarnar sem þú færð sendar heim til þín. Þá hugsa ég: Ókei, allt í góðu. Ef þessi hópur, háskólanemar, er ekki venjulegt fólk, hvar er þá venjulega fólkið sem er verið að sækja þennan pening til? Einhvers staðar frá þurfa þessir 143 milljarðar að koma. Auðvitað er verið að auka skuldsetningu ríkisins sömuleiðis, sem er heldur ekki jákvætt. Það er verið að taka lán og það er verið að auka skattbyrði framtíðarkynslóða sem verður væntanlega svoleiðis að við í dag munum þurfa að borga þessa skatta eða menningarframlög eða hvað sem það kallast. Við munum þurfa að borga aukagjöld fyrir að fá sendar ódýrar vörur utan úr heimi. Þetta er gert á sama tíma og ríkið er stækkað og útgjöld eru blásin út. Svo munum við seinna þurfa að borga fyrir lánið sem er verið að taka núna til að auka þessi útgjöld svona mikið. Ég er að reyna að átta mig á hvað það er í þessum útgjöldum sem er verið að gera betur eða gera öðruvísi. Eitt er bara að segja einhver orð sem þýða lítið eða ekki neitt en svo eru það gjörðirnar sem skipta máli og gjörðirnar sýna fram á að þó að þau tönglist á því að útgjöldin séu í hófi og að þetta sé aðhaldssamt frumvarp og að það sé vissulega verið að taka til í ríkisfjármálunum þá eru engar tölur sem benda til þess.

Mér hefur þótt áhugavert að fólkið í kringum mig, ungir hægri menn sem hafa ráðist á fyrrverandi ríkisstjórn og sér í lagi Sjálfstæðisflokkinn, ungir hægri menn sem hafa sagt að útgjöldin hafi verið allt of mikil, sér í lagi ungliðahreyfing Viðreisnar og vinir mínir þar sem hafa strítt manni mikið og sagt að þegar Viðreisn taki við ætli þeir heldur betur að taka ríkisfjármálin í gegn. Svo sést það núna, eins og maður hefur séð í borgarstjórn í ansi mörg ár, að þá er bara farið til vinstri og skattar eru hækkaðir. Útgjöldin eru þau mestu í sögu íslenska ríkisins; það eru 25 milljarðar í nýja skatta. Það á að skattleggja, eins og ég segi, ungt fólk. Það er verið að skattleggja núna með nýjum húsaleigulögum. Þá er verið að ráðast í það og ýta undir það að leigutekjur séu skattlagðar sem mun þýða hækkun á leigutekjum og leigumarkaðurinn mun væntanlega fara í rugl.

Svo er ég að reyna að átta mig á fyrir hvern er verið að forgangsraða. Við unga fólkið sjáum það ekki hjá okkur. Það er verið að hækka skatta, eins og ég segi, á það sem okkur finnst skemmtilegt, bæði Netflix og póstsendingar og það sem við höfum áhuga á að gera. Svo er verið að hækka áfengis- og tóbaksskatta, rafrettuskatta og nikótíngjöld um 3,7% sem er umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans sem er þó einungis til þess gert að annars vegar ýta undir verðbólgu og reyna að hafa vit fyrir fólki og reyna að segja því hvað það eigi að gera. Þetta er forræðishyggja sem við sjáum yfirleitt þegar vinstri flokkar komast til valda.

Sömuleiðis er verið að hækka skrásetningargjöld við Háskóla Íslands og þar með auka kostnað á ungt fólk og háskólanema sem eru að reyna að sækja sér menntun til að leggja áfram inn í hítina og væntanlega auka framtíðartekjur og þar af leiðandi skatta til framtíðar. En það á ekki að auðvelda menntun, alveg eins og það á ekki að ráðast í neinar breytingar í menntakerfinu; það á ekki að hlusta á það sem sérfræðingar í menntakerfinu hafa talað um, að ráðast á bókstafakerfið eða taka upp samræmd próf að nýju, heldur að halda áfram í sama farinu sem við sjáum öll að er ekki að ganga.

Ég hef komið með hugmyndir til að hjálpa ungu fólki að eignast húsnæði. Það þarf að breyta vaxtarmörkum höfuðborgarsvæðisins og rjúfa þau og byggja meira, brjóta nýtt land. Mér finnst ekki nóg að byggja 4.000 íbúðir í upp í Úlfarsárdal þar sem þetta er svo þétt að þar munu fáir vilja búa þrátt fyrir að eflaust sé búist við því að þessar íbúðir seljist upp sökum hlutdeildarlána sem munu auðvitað auka áfram eignir ríkisins og ekki stuðla að lækkun verðbólgu heldur munu stuðla að því að fólk mun búa í litlum íbúðum þar sem verða fá bílastæði lengst upp í Grafarvogi. Þetta verður allt í einu nýi raunveruleikinn. Svo er talað um að einn daginn muni borgarlínan koma þangað sem við vonum auðvitað að gangi vel en maður veit aldrei hvort það verði að raunveruleika.

Það er verið að auka kostnað. Nú er verið að auka bílastæðagjaldtöku í háskólunum og þá virðist hæstv. ríkisstjórn gera það sama og við höfum séð meiri hlutann í Reykjavík gera, þ.e. að nota frekar prik í staðinn fyrir gulrót. Það er ekki verið að búa til hvata til þess að fara í jákvæðar breytingar heldur er frekar verið að auka skatta og auka útgjöld. Það er verið að reyna að ýta fólki í einhverja ákveðna þróun og einhverja ákveðna breytingu sem mun væntanlega ýta undir verðbólgu og það mun koma sér langverst fyrir ungt fólk, tekjulægra fólk og fólk sem má ekki við þessum útgjöldum. Ef við horfum t.d. á kílómetragjaldið þá er verið að breyta úr því að þú borgir eftir notkun þar sem þú tekur bensín á dælu þar sem fer ákveðin föst krónutala til ríkisins þar sem þú notar nákvæmlega það sem þú notar.

Ég ætla að stela góðri sögu frá hv. þingmanni sem á vin fyrir norðan sem rekur þar sveitabæ; sá maður á tæki og ökutæki sem falla í 28 af þessum 29 gjaldflokkum þessarar nýju ríkisstjórnar. Ríkisstjórnin segir að þetta nýja frumvarp sé hlutlaust þegar kemur að kostnaðarmati. Það er auðvitað búið að vinna kostnaðarmat fyrir ríkið, stofnanir ríkisins, en það er ekki búið að vinna kostnaðarmat um hvernig þetta mun hafa áhrif á atvinnulífið sem maður hefði nú haldið að sé kannski það sem skiptir máli. Það á að ráðast í breytingar sem þau segja að séu hlutlausar en eiga samt að skila þeim 3 milljörðum í ríkiskassann. Kostnaðurinn við þetta hefur verið reiknaður 1,5 milljarður auk auðvitað kostnaðar á öll þau félög sem munu þurfa að standa straum af þessari auknu reglusetningu. Þessi bóndi sem ég ræddi áðan um norðan heiða á, eins og ég segi, tæki sem falla inni í 28 flokka af þessum 29. Það vantar einungis mótorhjól, þá á hann tæki í öllum flokkum. Hann mun núna þurfa að halda bókhald utan um hversu mikið hann notar hvert og eitt tæki og innheimta kílómetragjald af hverju og einu, hvað hann keyrir hverja og eina vél mikið og skila því árlega svo það sé reiknað út hvernig þetta sé notað. Svo fær hann gíróseðil einu sinni í mánuði þar sem hann mun væntanlega þurfa að borga færslugjald fyrir hverja og eina vél og reikna þetta út. Og ef þetta reiknast eitthvað vitlaust þá reiknar maður nú með því að ríkið muni heldur betur sækja það.

Þarna erum við komin með kerfi sem á auðvitað að vera að einfalda en boðar skriffinnsku og aukið regluverk á fullt af fólki sem hefur verið að greiða þessi gjöld með mjög einföldum hætti með því að taka bensín á stöð. Núna þarf að halda utan um allt þetta skrifræði og regluverk og eflaust ráða manneskju í að halda utan um þetta. En samt, þrátt fyrir allar þessar breytingar og þrátt fyrir að setja allt þetta regluverk og alla þessa skriffinnsku á fólk alls staðar um landið þá segir ríkisstjórnin að þetta muni ekki hafa nein áhrif á það. Þarna finnst mér skína í gegn vanvirðing þessarar ríkisstjórnar gagnvart atvinnulífinu og fólkinu þarna úti sem er raunverulega að vinna vinnuna og þarf raunverulega að vinna þessi störf. Þau segja að þetta sé vegna þess að það sé innviðaskuld — sem ég er alveg sammála og í grunninn er ég auðvitað sammála því að þeir sem noti vegina eigi að borga fyrir notkunina umfram aðra. En svo horfir maður á hvað er raunverulega að eiga sér stað. Þau hækkuðu veiðigjöldin og ætluðu að ná þar inn auka 7 milljörðum. Kílómetragjöldin eiga að skila þeim 3 milljörðum og aukin vörugjöld á ökutæki 7 milljörðum í viðbót. Bara með þessum hækkunum reiknast mér að þau séu að sækja sér auka 17 milljarða í nýjar tekjur sem ég sé ekki að séu að fara í vegagerð þar sem aukningin í vegakerfið er einungis 4 milljarðar, sem er vel. En ég átta mig ekki alveg á því hvernig þau ætla að halda áfram að lofa að þau séu að hækka skatta á fólk og fyrirtæki þarna úti en peningnum getur bara verið varið í eitt. Þarna er augljóslega verið að hækka skatta sem renna svo í eitthvað allt annað.

Þetta er eitthvað sem mér finnst ríkisstjórnin vera að gera á ansi mörgum stöðum, eins og hún átti sig ekki á hvaða áhrif þetta muni hafa á fólkið í landinu og þyngja byrðar þess. Ef við tökum bara saman t.d. þetta kílómetragjald sem mun væntanlega bitna langmest á landsbyggðinni og gera matarkörfuna, ef við tölum bara um hana, dýrari víðs vegar um landið. Þetta mun stuðla að því að ferðamenn munu síður taka bíl á leigu eins og þeir hafa verið að gera en 60% ferðamanna í núverandi ástandi taka bílaleigubíl. Af hreinorkubílunum sem eru í boði hafa heimtur kílómetragjalds af þeim verið á milli 50% og 70%. Samt á að reiknast núna til þess að ríkið ætli að fá 100% fyrstu mánuðina. Eftir að núverandi gjaldi á hreinorkubíla var komið á voru innheimtur milli 15% og 30%. Við skulum sjá hvernig þetta gengur núna. Þá hugsa ég: Hver mun taka skellinn ef innheimturnar verða ekki sem skyldi? Ef það verður svoleiðis að ferðamenn koma hingað og munu svo þurfa að borga kílómetragjald en þeir verða farnir af landi brott þar sem þeir skila bílnum þá mun verða eftir kostnaður á bílaleigum sem við viljum að gangi vel. Við viljum að það komi margir ferðamenn og að þeir ferðist um landið, versli við veitingastaðina okkar og gisti á hótelunum okkar. En með þessari breytingu mun það eflaust þýða að það verða færri ferðamenn sem munu gera sér ferð hingað og enn þá færri sem munu ferðast um landið. Með því að auka kostnaðinn hjá flutningakeðjum þá munu stórir flutningabílar sem flytja mat á milli matvöruverslana, til dæmis dagvöruverslana, sem sumar hverjar hafa reynt og barist fyrir því í mörg ár að halda sama verði um allt land, hvort sem þær koma héðan frá höfuðborgarsvæðinu eða af landsbyggðinni, þá mun kostnaðurinn verða svo gífurlegur að þetta mun ýta undir hækkun á matarkörfunni. Þetta mun annars vegar hækka verðbólgu, og það mun koma við allt landið, en sömuleiðis ýta undir aukinn kostnað á landsbyggðinni.

Það er eitthvað sem ég held að þessi ríkisstjórn sé algjörlega að fara á mis við. Ég held að hún sé algerlega að misreikna áhrifin sem þetta mun hafa. Þau ætla að ná inn auka 3 milljörðum með þessu frumvarpi. Þegar útgjöldin eru 1.600 milljarðar þá finnst mér 3 milljarðar í stóra samhenginu ekki skipta miklu máli en þau eru tilbúin að veðja þessum 3 milljörðum og reyna að taka auka 3 milljarða í gegnum þessi kílómetragjöld. Í raun og veru ætla þau að fórna ferðamannaiðnaðinum eins og ég skil þetta. Þau eru að veðja á það að fjöldi ferðamanna muni lækka minna heldur en þessir 3 milljarðar og þar muni þetta skila þeim nettótekjum inn í ríkissjóð. En ég held að það muni alls ekki vera staðan. Ég held að í nettó muni Ísland, hvort tveggja ríkissjóður og við sem samfélagið allt, tapa alveg gífurlega á þessu þegar á heildarmyndina er litið.

Ég held að hæstv. ríkisstjórn sé akkúrat að gera þessi mistök í ansi mörgum málum. Hún sé ekki að reikna með heildaráhrifum heldur einungis að reyna að horfa á hvað hún er að gera núna; hún er að lofa upp í ermina á sér og auka útgjöld og gera breytingar sem ég held að hún sjái ekki alveg fyrir endann á, eins og við sjáum núna ef við förum strax í veiðigjöldin og hvernig þau hafa haft áhrif og breytt störfum víðs vegar um landið og fólk hefur misst vinnuna. Nú munum við áfram sjá hvaða áhrif það mun hafa. Ég held akkúrat að þessi ríkisstjórn sé ekki raunverulega að reikna með því hvaða áhrif þetta muni hafa á atvinnulífið, ferðaþjónustuna og landsbyggðina. Meira að segja, eins og ég sagði áðan með gulrótina og prikið, þá er ekki verið að hvetja fólk, bílaleigur eða hvern sem er til þess fara í orkuskipti til þess að koma betur út þegar kemur að loftslagsmarkmiðum heldur er verið að nota, eins og ég segi, prik til þess að neyða og setja kvaðir á fólk og fyrirtæki til þess að þau skuli skipta því, annars munu koma aukin útgjöld á þau.

Talandi um regluverk þá er skrýtið að núverandi ríkisstjórn ætli að færa sig úr því að það séu fjögur olíufélög sem geri upp við ríkið varðandi kaup á dísilolíu og krónutöluna á kílómetragjaldinu, eins og það er núna, notkun á vegunum, og dreifa því á rúmlega 300.000 bíla sem eru í umferð í dag þar sem hver og einn mun þurfa að halda utan um sína keyrslu, hvernig hann ekur og þess háttar.