breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Viktori Pétri Finnssyni fyrir ágætt erindi. Mig langar aðeins af því að ég var að hlusta á þær áherslur sem helst komu fram í máli hans og ég hjó sérstaklega eftir því að hann var á þeim nótum, eins og við höfum verið fleiri, um áhrif skattlagningar. Í því samhengi langar mig svolítið að leiða hv. þingmann inn í samtal við mig um þessa íslensku uppfinningu sem er í raun ótrúlegt að fleiri þjóðir skuli ekki hafa tekið upp miðað við hvernig hún er útskýrð fyrir okkur hér, þ.e. að það sé hægt að fara hér í stórfelldar skattahækkanir, hvort sem við erum að tala um innviðaskattinn, kílómetraskattinn, kolefnisskattinn eða vörugjaldaskattinn — svona gætum við haldið áfram, hv. þingmaður, eitthvað lengur en ég held að skilaboðin séu komin. Svo er okkur sagt í nánast hvert og eitt skipti af fulltrúum ríkisstjórnarinnar að þetta muni ekki hafa nein áhrif. Mig langar að spyrja hv. þingmann, sem er ungur og efnilegur og sér hlutina kannski aðeins með öðrum augum en við sem erum á miðjum aldri, hvort hann kannist við þessa nýju hugmyndafræði, þessar nýju hagfræðikenningar, þ.e. að okkur hafi auðnast að finna tekjuöflunarleið í skattformi sem sé með öllu áhrifalaus.