breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Ég er farinn að átta mig svolítið á því hér eftir að hafa stigið inn þessa viku sem ég er hér að það er eins og fólki finnist sem við í stjórnarandstöðunni áttum okkur ekki alveg á því hvernig hlutirnir raunverulega virka og verið að reyna að útskýra fyrir okkur að svona sé það raunverulega sem þetta eigi að vera. Ef við tökum bara sem dæmi kolefnisgjöldin sem á að hækka núna þá þurfum við ekki að horfa lengra en til nágrannalanda okkar til að sjá hvernig er verið að gera hlutina öðruvísi þar. Bæði Danir og Svíar hafa t.d. fellt niður kolefnisgjöld á fiskiskip sem er eitthvað sem þessi ríkisstjórn ætlar ekki að gera heldur auka álögur á fiskiskipin. Það fellur eflaust í kramið hjá þeim þar sem þau halda áfram að „ráðast á“ sjávarútveginn og ætla að reyna að ná meiru út úr honum. Þetta er einhvern veginn það sem fylgir þessari ríkisstjórn, að útskýra fyrir okkur hvernig hlutirnir eru raunverulega. Mér finnst svo áhugavert að eiga þetta samtal við fólk sem ég hef átt samtal við áður en það settist í í ríkisstjórn þar sem það hafði allt aðrar skoðanir þá og ég gef mér að hæstv. fjármálaráðherra átti sig nú á hvernig hlutirnir raunverulega virka en ákveði samt, eins og hann gerir núna, að hækka skatta á fólk og fyrirtæki nánast upp í topp þar sem útgjöldin hafa aldrei verið meiri. Ég er spenntur að sjá hvort undanfarin ár, þar sem það kemur upp eldgos í Grindavík og sömuleiðis heimsfaraldur, að þau útgjöld sem við sáum þá séu í raun og veru orðin nýtt gólf fyrir útgjöld ríkisins og þau muni bara halda áfram að aukast hjá núverandi ríkisstjórn.