breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Þetta sem ég taldi upp áðan ásamt auðvitað talsvert mörgum fleiri liðum sem eru hér til umræðu til hækkunar og lagðir fram, í sumum tilfellum ekkert stórar upphæðir hver liður fyrir sig, en safnast þegar saman kemur eins og oft er sagt og heildarpakkinn sýnist mér líta út fyrir að vera núna um 28 milljarða kr. skattahækkun. Það hefur oft brostið band milli manna, og ég tala nú ekki um hér í þessum sal milli meiri og minni hluta, út af minni málum og minni upphæðum en þessum. Það er því ekki skrýtið þó að þessi umræða taki tíma því að ég held að það sé erfitt, úr því að það er erfitt fyrir okkur sem erum að vinna í þessu og erum að ræða þetta allan daginn og fá endalaust nýjar upplýsingar, að ná utan um hvers lags gífurlegar skattahækkanir eru hér að koma, að fólkið úti í samfélaginu geri sér grein fyrir því hvað er að gerast. Þess vegna beindi ég þessari spurningu til hv. þingmanns, þ.e. að hjálpa fólki sem kannski er ekki horfandi á útsendingar frá Alþingi svona dagsdaglega, eða ég á síður von á því, að þau skilaboð komist út að sú ríkisstjórn sem varð til og fékk fylgi mikið til, sérstaklega tveir flokkar hennar, út á ítrekuð loforð um að fara ekki í skattahækkanir, alls ekki á venjulegt fólk og helst ekki heldur á fyrirtæki, þá er þetta nú samt niðurstaðan.
Mig langar að spyrja hv. þingmann: Þegar fólk fer að finna þetta á eigin buddu, eigin veski, má ekki reikna með einhvers konar hegðunarbreytingum?