breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir góða spurningu. Ég ætla að fá að segja að mér sárnar að hv. þm. Ingvar Þóroddsson sé ekki í salnum núna þar sem ég dæmdi í liðinni viku Morfís-keppni, vissulega æfingakeppni, þar sem umræðuefnið var valkyrjustjórnin. Þar mættust tveir framhaldsskólar þar sem rætt var um með og á móti póla þessarar ríkisstjórnar, ágæti hennar og hvaðeina. Núna er ég eflaust að gera annað liðið alveg brjálað en mér fannst rökin með þessari blessuðu ríkisstjórn í raun og veru vera fátt annað en að hún mældist svo vel, hún væri svo frábær vegna þess að skoðanakannanir sýna að hún mælist hátt. Þá vil ég bara benda fólki á að það er Samfylkingin sem mælist hátt en það er ekki hæstv. ríkisstjórn. Ég held að það segi ýmislegt um þessa ríkisstjórn að rökin með henni séu í raun og veru þau að þetta sé það sem fólkið kaus fyrir ári síðan. Þar af leiðandi sé þetta frábært af því að fólkið kaus þetta fyrir ári. Ég held að þetta sé þó ekki það sem fólk hafi viljað. Ég held að fólk hafi viljað allt öðruvísi ríkisstjórn en þetta hafi orðið niðurstaðan. Ég held að við séum núna komin á þann stað í núverandi ríkisstjórn þar sem þetta mun raunverulega fara að bitna á og bíta venjulegt fólk sem þessi ríkisstjórn lofaði þó að ætla ekki að hækka skatta á. Ég held að síðastliðin lækkun stýrivaxta Seðlabankans sé ekki af góðu komin og ég held að vextir muni áfram haldast háir miðað við aukin útgjöld þessarar ríkisstjórnar og ég held að hún muni ekki halda áfram að lækka útgjöldin heldur að skuldasöfnunin muni halda áfram að hækka og skattar sömuleiðis.