157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[18:32]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S):

Virðulegi forseti. Við höfum verið að ræða hér svokallaðan skattorm sem er forsenda tekjuöflunar ríkissjóðs varðandi fjárútlátin. Það er bara þannig að við erum í þessari stöðu að þurfa að hækka hér alla skatta fyrir utan eina skattalækkun og aðra sem rennur sitt skeið af því að hún átti að vera tímabundin. Annars er verið að hækka skatta út af því að ríkisstjórnin getur ekki komið sér saman um að halda aftur af útgjöldum. Ég kom inn á það áðan að hér væri búið að senda inn erindi til nefndarinnar, hv. efnahags- og viðskiptanefndar, um það að þessi útfærsla á innheimtu vörugjaldaskattanna væri brot á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Mig langaði að fara aðeins betur yfir það af hverju hér er að öllum líkindum verið að brjóta stjórnarskrána. Ég myndi telja að það þyrfti að bregðast við því á einn hátt og taka það til alvarlegrar skoðunar áður en lengra er haldið með þetta mál, virðulegur forseti.

Það er þannig að mengunarskráning á bílum, hvernig bílar menga, er skráð á nokkra mismunandi vegu. Það er hægt að mæla það á mismunandi vegu. Það eru svona nokkur kerfi sem eru til, aðallega tvö, sem hafa uppruna sinn í Evrópusambandinu, þar á meðal í EES-samningnum. Það er verið að breyta þessu til að auka hvatann til þess að framleiða umhverfisvænni bíla og það er markmiðið með skráningarkerfinu. Þá getum við verið í þeirri stöðu hér á landi að vera með þrjú nákvæmlega eins ökutæki sem eru framleidd á kannski tveggja ára tímabili en í grunninn eru þau framleidd nákvæmlega eins og úr sömu framleiðslulínunni. Þegar þessi ökutæki koma hingað til lands geta þau verið skráð miðað við þrjár mismunandi reglur eftir því á hvaða tímabili þau koma — sem sagt alveg eins ökutæki, þrjár mismunandi skráningar.

Út af þessu fyrirkomulagi hefur Evrópusambandið sent tilmæli til allra EFTA-ríkjanna og sagt að þetta kerfi megi ekki nýta til skattlagningar. Þetta kerfi gengur ekki upp til skattlagningar á ökutæki. Af hverju gengur það ekki upp til skattlagningar á ökutækjum? Jú, af því að þú getur verið með þrjú eins ökutæki en þau fá þrjá mismunandi skattareikninga. Það sér hver heilvita maður að það er ekki sanngjarnt. Það er ekki neitt jafnræði í því að þú þurfir að borga hærri gjöld bara fyrir það eitt að þú keyptir bílinn á einhverju öðru tímabili heldur en hann Nonni frændi sem borgar þá minna í skatt af því að hann keypti bílinn aðeins á undan en Jóna frænka þarf að borga enn meira af því að hún keypti bílinn mánuði seinna — allt sama ökutæki.

Á þetta hefur verið bent í öllu ferli málsins frá því að málið kom inn hér löngu eftir að 1. umræða fór fram en ekkert hefur verið brugðist við þessu eða gert með þetta. Frekar hefur mælieiningin verið ýkt þannig að þetta eru tvöföld álög; bæði eru vörugjöldin hækkuð allsvakalega og mælieiningin í þeim gerð strangari og ekki tekið tillit til þessa. Hér er búið að senda okkur dómafordæmi fyrir því að svona skattlagning brjóti stjórnarskrá. Með þessar upplýsingar getum við ekki bara haldið hér áfram. Ef einhver á að virða stjórnarskrána þá hljótum það að vera við hér í þingsal Alþingis.

Svo má náttúrlega deila um það hvort að svona stór breyting eins og vörugjöldin eru, tekjuauki upp á 7,5 milljarða samkvæmt fjárlagafrumvarpinu — þó að forsendurnar séu óljósar fyrir því og höfum við kallað eftir því í hv. efnahags- og viðskiptanefnd að fá miklu meiri sundurliðun á því hvernig þessi 7,5 milljarður á að raungerast, hvernig sú tekjuforsenda er fundin. En af gögnum málsins sést að það var ákveðið að það ætti að sækja 7,5 milljarða og svo voru reglurnar búnar til. En það sem ég var að byrja að segja hér: Stenst það þinglega meðferð að koma með algerlega nýjan tekjustofn inn eftir 1. umræðu? Það er ekkert í gögnum málsins, það er ekkert í frumvarpinu eða greinargerð með þessum skattormi hér sem við ræðum, sem segir okkur að það eigi að leggja hér á vörugjöld með þessum hætti, það er ekkert talað um að það eigi að breyta vörugjaldakerfinu. Hér við 1. umræðu var engin umræða um það að vörugjöldunum yrði breytt. Meira að segja eftir 1. umræðu sagði hæstv. ráðherra aðspurður af mér, að þessi áform væru bara 3,7%, almenna verðlagsupphæðin, sem stenst náttúrlega engan veginn, það gengur ekki upp í neitt reikningsdæmi.

Þegar dómstólar fjölluðu síðast um það hvort þetta stæðist þinglega meðferð, að breyta á milli umræðna, þá var það niðurstaða dómstólanna að það stenst að breyta málum töluvert á milli umræðna, þó að breytingarnar fái ekki allar þrjár umræður, ef þær tengjast markmiðinu í 1. umræðunni; ef það lá ljóst fyrir hvert markmiðið er og það er bara verið að breyta leiðinni að markmiðinu. En markmiðið með þessum tekjubandormi, eða skattormi sem við ræðum hér í dag, var ekki að breyta vörugjaldakerfinu. Það markmið var hvergi rætt við 1. umræðu. Það setur þetta í svolítið erfiðara ljós, sérstaklega þegar þetta er svona stórt og áhrifamikið. Því skulum við ekki vera hissa, ef þetta fer svona óbreytt í gegn, á því að kaupendur ökutækja láti reyna á þetta fyrir dómstólum hvort þessi gjaldtaka standist lög af því að ekkert kom fram um þetta í 1. umræðu, ekki neitt.

Það er líka margt í þessu sem á eftir að koma okkur á óvart þegar og ef þetta kemur til framkvæmda; t.d. er ein hækkunin í þessu að hækka vörugjöld á alla aftaní- og tengivagna úr 13% í 20%. Jú, við erum í dag að rukka, eitt landa, 13% vörugjöld af hjólhýsum. Nú fer það bara nánast án umræðu upp í 20%. Ég hélt að við vildum hvetja landsmenn til að ferðast innan lands, njóta íslenskrar náttúru, ekki vera að fara með íslensku krónurnar erlendis í ferðalög, frekar að nýta þær hér innan lands. Frístundaferðalög fjölskyldna hér innan lands munu hækka töluvert. Það verður svolítið áhugavert að sjá hvernig innflytjendur hjólhýsa og svo almenningur sem kaupir hjólhýsin skipta með sér þessari kostnaðarhækkun af því að ég held að eiginlega allir ferðavagnar sem verða til sölu hér í vor, fyrir næsta sumar, hafi verið pantaðir í júní, júlí síðastliðnum. Það gat engan grunað að hér 17. október myndi birtast minnisblað frá fjármálaráðuneytinu til Alþingis, hv. efnahags- og viðskiptanefndar, og boða hækkun á vörugjöldum. Það hafði bara enginn hugmynd um að það myndi gerast. Svona getur maður farið í gegnum öll keppnistækin sem á að hækka, svona er hægt að fara í gegnum alla fornbílana sem á að hækka, svona er hægt að fara í gegnum öll almennu ökutækin sem eru að hækka. Þetta er náttúrlega engin framkoma við fólk í landinu og fyrirtækin sem standa að innflutningi á þessum tækjum.

Þetta er allt sagt í nafni umhverfisverndar. Það er ein skýringin og ein afsökunin á þessu öllu saman. Það er þannig að atvinnutæki sem eru yfir ákveðinni þyngd hafa ekki borið vörugjöld eða þá verið í lægri flokknum, það er misjafnt eftir tegundum og annað slíkt. En ef þetta er atvinnutæki eins og sendibílar og vegur yfir 2,5 tonn þá hafa verið mjög lágar álögur á því. Það eru ökutækin sem eru nýtt hér í þéttbýlinu, hér á Laugaveginum, hér í miðborginni og víðar, til að dreifa vörum. Nú eru þessi ökutæki að fara að fá, að mig minnir, 20% vörugjöld. Annaðhvort þurfa sendibílstjórar núna að rukka Aðföng og Haga, þá sem dreifa vörunum hér í verslanirnar, hærra fyrir sendingarkostnaðinn, þá þarf að hækka vörurnar til neytandans, en þeir geta líka aðeins varið sig fyrir þessu og keypt sér bara 12 tonna flutningabíl eða þyngri til að losna við gjöldin. Nú er orðinn öfugur hvati, verði þetta að lögum, til að kaupa þyngri ökutæki og fara að keyra hér um höfuðborgina. Nú fáum við bara alla kassabílana hérna, stóru vörubílana, til að keyra Laugaveginn með vörurnar út af öfugum hvata hér.

Allt gerist þetta, brot á stjórnarskránni, öfugir hvatar, árás á mótorsportið, árás á fornbílaeigendur, út af því að hæstv. ríkisstjórn vantaði 7,5 milljarða, ákvað upphæðina fyrst og fór svo að reyna að semja eitthvað. Og hver borgar? Það er hinn almenni neytandi í þessu landi. Það er alltaf hann sem fær reikninginn. En út af því hvað fyrirvarinn er stuttur þá mun líka töluvert af fyrirtækjum, fjölskyldufyrirtækjum, þurfa að taka á sig stóran skell. Á sama tíma og atvinnuleysi er að aukast, það þrengir að í efnahagslífinu, það er samdráttur í atvinnulífinu, kaupgeta almennings og fyrirtækja er minni, þá sitja fyrirtækin uppi með mun hærri álögur frá stjórnvöldum heldur en þau bjuggust við fyrir mánuði síðan. Þetta er það sem hæstv. ríkisstjórn er að bjóða okkur upp á. Ég tel að við þurfum eitthvað að fara betur yfir þetta áður en við getum haldið lengra hér á Alþingi.