157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[18:47]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög áhugaverða ræðu. Nú hefur þetta reyndar verið rætt dálítið í dag þetta atriði varðandi bandorminn, að hér sé verið að brjóta jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Það má rekja til framhaldsumsagna SVÞ og Bílgreinasambandsins, atriði sem þau reyndar bentu á allan tímann að þyrfti að bregðast við og hefur ekki verið brugðist við og snýst um, eins og þingmaðurinn fór ágætlega yfir, að ökutæki geti verið með skráðan útblástur á mismunandi hátt eftir því hvenær nýskráningin á sér stað.

Það sem er líka áhugavert í þessu er að ESB sendi tilmæli til allra EFTA-landanna um að ekki mætti nýta þessa skráningu til skattlagningar. Ég hélt að við værum hér með meiri hluta, ríkisstjórn, hv. þingmaður, sem einmitt sér allar þessar reglugerðir ESB í hillingum og vill undirgangast þær allar, gera þær að sínum og ganga helst inn í það brennandi hús þar sem reglurnar eru reyndar að valda því að stórfyrirtækin eru að flýja. Látum það liggja á milli hluta. Þessi ríkisstjórn, í það minnsta tveir flokkar hennar, hefur haft það á stefnuskrá sinni að ganga þarna inn til að vera undir þessu regluverki. Svo koma algjörlega skýr fyrirmæli og það er ekki brugðist við, það er ekki hlustað. Ég spyr hv. þingmann: Hvað veldur því þegar þú sem einstaklingur eða sem hluti af ríkisstjórn eða hluti af meiri hluta gengur fram fyrir skjöldu með skýran boðskap um hvar sé best að vera, undir hvaða regluverki sé best að vera, svo koma skýr fyrirmæli og þá henta þau ekki. Hvað veldur, hv. þingmaður?