157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[18:49]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar góðu vangaveltur um hvað veldur. Það er því miður svoleiðis að við vinnslu málsins og líka í umræðunum hér í dag þá hef ég orðið var við það að ákafinn er svo mikill við að sækja tekjurnar. Þörfin fyrir auknar tekjur er svo mikil að það er bara vaðið áfram án fagmennsku, án þess að setja sig nógu vel inn í málin, án þess að hlusta á varnaðarorðin og upplýsingarnar. Það er eins og umsagnir gestanna hafi engin áhrif. Ég ætla ekki að segja að þau hafi ekki haft nein áhrif en þetta tiltekna atriði var sagt á fyrsta fundi nefndarinnar þegar fulltrúar Samtaka verslunar og þjónustu mættu og kynntu að þetta væri ekki hægt. Samtökin eru ítrekað búin að benda fjármálaráðuneytinu á þetta sem er að vinna málið með þinginu og upplýsa þingið og eru að svara og senda minnisblöð til okkar ítrekað. Samt er ekki brugðist við. Samtök verslunar og þjónustu þurftu að senda hér í þriðja sinn athugasemd og samt er ekkert með þetta gert. Ég held að þörfin sé bara svo mikil fyrir peningana að þau hlusta meira að segja ekki á Evrópusambandið, það hefur gengið svo langt.