157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[18:51]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Þetta er áhugavert því okkur hefur oft verið sagt, sem ekki höfum á okkar stefnuskrá að ganga inn í þetta brennandi hús, að við getum ekkert bara handvalið þær reglur sem við viljum undirgangast og hverjar ekki. Ég sé ekki betur, hv. þingmaður, en að það sé akkúrat það sem verið er að gera hér því tilmæli ESB til EFTA-landanna eru algjörlega skýr. Í stað þess að fara að koma hér upp í fundarstjórn forseta, frú forseti, þá leyfi ég mér bara að nýta hér tímann úr því að ég er hér í þessum ræðustóli, sem ég á strangt til tekið að nota til þess að spyrja hv. þm. Vilhjálm Árnason frekar út í málið en hann hefur útskýrt þetta vel og þetta kemur mjög vel fram í áðurnefndu minnisblaði, að leita ásjár frú forseta. Eins og hv. þingmaður vék að áðan hefur þingið leyfi til að breyta hér málum milli umræðna. Það er staðfest með dómi, svo fremi sem það tengist markmiði málsins. Það gildir ekki hér. Þess vegna held ég að ég verði, frú forseti, að leita ásjár forseta og óska eftir því að það verði tekið til skoðunar hvort hér sé ekki aðeins verið að fara á svig við þessa tilskipun heldur jafnvel verið að vega að stjórnarskránni. Mér er full alvara, frú forseti, í þessari beiðni. Ég óska eftir því að frú forseti bregðist við og láti fara fram ítarlega skoðun á því hvort þessi umsögn sé í raun og veru með svo þungt vægi að hér sé vegið að máli í meðförum þings, það standist ekki og jafnvel höggvi í stjórnarskrána. Ég bið hv. þm. Vilhjálm Árnason afsökunar á því að í þessu er kannski engin bein spurning.