157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[18:53]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að það eru þrjú alvarleg atriði varðandi meðferðina á þessu máli sem ég teldi rétt að myndu skýrast betur áður en umræðan hér um þennan skattorm klárast; hvort að innheimta skatta eins og vörugjöld af ökutækjum á þrjá mismunandi vegu eftir því hvenær ökutæki er keypt standist jafnræðisreglu stjórnarskrár eða ekki, hvort að vörugjöldin séu það stór breyting að það sé nægilegt að koma með minnisblað um það eftir 1. umræðu þegar það var ekki minnst á það einu orði í upphaflegu greinargerðinni og í þriðja lagi, sem ég hef kannski talað minna um hér, áhrifamatið af þessum vörugjöldum, kílómetragjaldinu og á öllum þessum álögum á umferðina. Ég hef sérstaklega talað hér um áhrifin á tekjulægri hópa og kannski hópa í viðkvæmri stöðu, hópa sem treysta á greiðslur frá almannatryggingum, eru kannski með félagslegar áskoranir og annað slíkt, að þau þurfa nú að fara að skrá reglulega með sinni tækniþekkingu inn á island.is akstur sinn af ökutækinu sem þau kaupa dýrari dómum út af hærri vörugjöldum og þau geta verið að fá mjög háa bakreikninga. Mér finnst það ekki vera fallega gert af okkur að senda þannig löggjöf frá okkur sem er svo flókin í framkvæmd að fólk í viðkvæmri stöðu fer að fá háa bakreikninga frá Skattinum.