almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Mig langar að spyrja hv. framsögumann þessa máls hvort hún sjái fyrir sér að þessi eingreiðsla verði endurtekin að ári. Það kemur fram í gögnum málsins að málið eigi sér kannski ekki langa sögu en hafi verið endurtekið núna með einhverjum smábreytingum. Í minnisblaði frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu til hv. velferðarnefndar kemur fram að það hafi verið haldið í einhver rök fyrir þessari sérstöku eingreiðslu að vinnu við fyrirhugaðar breytingar á örorkulífeyriskerfi almannatrygginga hafi ekki verið lokið en það er sérstaklega tekið fram að það kerfi tók gildi 1. september 2025. Það væri áhugavert að vita hvort hv. framsögumaður nefndarinnar sjái fram á að þessi eingreiðsla verði endurtekin að ári.
Hin spurningin sem ég vildi varpa hér fram af þessum tveimur sem ég vil nota þetta andsvar í er: Getur hv. framsögumaður málsins upplýst þingið um það hvernig þessi eingreiðsla verður fjármögnuð? Það kemur fram í frumvarpinu í áhrifamatskaflanum að frumvarpið muni kosta ríkissjóð 2 milljarða en það kemur ekki fram hvort gert hafi verið ráð fyrir þessum 2 milljörðum í fjárlögum sem nú eru einmitt til umfjöllunar í hv. fjárlaganefnd og virðist nú vera einhver bið á að málið komi út þaðan á milli 2. og 3. umræðu. Með hvaða hætti verða þessir 2 milljarðar fjármagnaðir á þessu ári?