almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Þetta með hvort þetta verði endurtekið: Nú þori ég ekki að segja það en ég ætla bara að vona að það verði svo þangað til að búið verður að ná þessum lægsta hópi upp í lífvænleg laun, ef við orðum það þannig. Ég myndi styðja það heils hugar ef við yrðum ekki búin að ná þessum áætlunum okkar að ná þessum launum upp í 450.000 kr., eins og ætlunin er hjá þessari ríkisstjórn.
Nú í sambandi við peningana þá erum við búin að fá þær upplýsingar að þetta sé fullfjármagnað. Aðrar upplýsingar get ég ekki gefið henni. Það er það sem við fengum upplýsingar um, að þetta væri fullfjármagnað.