157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

almannatryggingar.

236. mál
[19:04]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er rétt að ég biðjist afsökunar á að hafa mismælt mig eða ruglað saman örlítið. Ég nefndi hér fjárlögin. Það er ætlunin hér að afgreiða þetta mál á þessu ári þannig að það sem ég var að vísa til, hvort það væri gert ráð fyrir þessum greiðslum í fjárlögum yfirstandandi árs eða jafnvel í hinum fjórða fjárauka sem liggur fyrir þinginu hér, þriðja fjáraukalagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, hvort hv. þingmaður hafi hugmynd um það hvernig þessir 2 milljarðar séu fjármagnaðir? Þótt hún hafi fullvissu fyrir því að þeir séu fullfjármagnaðir hefur reyndin verið sú að þessar eingreiðslur hafa einmitt aldrei verið fullfjármagnaðar fyrr en eftir á, sem sagt með fjáraukalögum. Það er mikilvægt fyrir þingið að vera upplýst um það hvernig þessar greiðslur, eigi þær að koma til greiðslu á þessu ári, hvernig fjárlög þessa árs, eða eftir atvikum þá fjáraukalög, hafa tekið á því og viti af því.

Að öðru leyti skil ég þá hv. þingmann þannig að hún líti á þessa eingreiðslu sem einhvern hlut í allsherjarbreytingu á örorkulífeyriskerfinu og jafnvel ellilífeyriskerfinu og sjái fram á að þessar eingreiðslur komi áfram til framkvæmda á næstu árum.