almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Í sambandi við fjármögnunina þá er hún í fjáraukanum, svo það sé á hreinu. En í sambandi við þessi blessuðu laun þessa fólks okkar, sem ég segi að séu lúsarlaun því þetta er fólk sem varla nær endum saman, stærsti hlutinn af þeim hópi sem er að fá t.d. þessar greiðslur núna hérna er t.d. konur en þetta er líka fólk sem er öryrkjar og jafnvel öryrkjar frá upphafi, jafnvel frá fæðingu eða slasast ungt og á ekki rétt á neinum lífeyri. Ég get bara sagt hér að ég hef aldrei fengið eins marga pósta og núna bara síðustu vikuna einmitt um þetta mál sem spyr: Hvernig verður þetta? Verður þetta greitt út fyrir jól? Og fæ þá raunarsögur með, sem er grátlegt, en ég ætla ekki að hafa þær eftir hér.