157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

almannatryggingar.

236. mál
[19:20]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu og þakka honum fyrir að rifja upp og segja hér frá lýsandi Facebook-samfélagsmiðlaútsendingu hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra, sem leggur þetta mál fram, þar sem hún kallar þetta einmitt jólabónusinn. Ég hjó eftir því að hv. þingmaður er farinn að trúa hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra að því leyti að hann kallaði þessar greiðslur líka jólabónusinn og að fólk væri að bíða eftir jólabónusnum. En það er einmitt þannig að desemberuppbótin er nú sett á laggirnar í kristilegum kærleik einmitt í því markmiði að mæta fólki sérstaklega í jólamánuðinum. Hér er komin önnur aðgerð sem hefur í sjálfu sér ekkert með jólin að gera vegna þess að þetta er eingreiðsla sem á rætur að rekja til Covid-áranna, ein af þessum Covid-aðgerðum. Þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann telji ekki tíma til kominn að ljúka öllum Covid-aðgerðum. Því hefur reyndar verið haldið fram af stjórnvöldum, bæði síðustu ríkisstjórn og þessari, að nú séum við komin yfir Covid-hjallann og það sé aldeilis verið að og búið að skrúfa fyrir allar þessar Covid-aðgerðir sem urðu okkur fjötur um fót, svo mikið að við sjáum ekki fram úr þeim fjárhagsvanda sem var búinn til á tímum Covid. Teldi hv. þingmaður ekki eðlilegt að þessi greiðsla félli niður hér með? Þá vil ég líka spyrja hann hvað honum finnist um að hún sé fjármögnuð með fjárauka. Hv. framsögumaður sagði „í fjáraukanum“, en það er ekki eins og það sé bara einn fjárauki hér til umræðu. Þeir eru orðnir fjórir, fjáraukarnir sem renna í gegnum þingið fyrir jól.