157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

almannatryggingar.

236. mál
[19:23]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrra andsvarið og samstarfið í nefndinni, sem er alltaf ánægjulegt. Örstutt varðandi orðanotkun þá var þetta aðallega tilvísun í orð og hugtakanotkun hæstv. ráðherra. Ég studdist við hennar orð, jólabónusinn. Það er bara það sem hefur truflað málið í heild sinni. Það er annars vegar auðvitað hvernig það kemur fram og er svona til marks um það sem ég hygg að ég og hv. þingmaður séum sammála um, að það er ábyrgðarhluti að mæla fyrir frumvörpum hér í þinginu og sérstaklega svona aðgerðum, að það er erfitt að vinda ofan af því sem komið er, hvort heldur sem það eru skattar eða greiðslur eins og þessar sem var komið á við sérstakar aðstæður. Það var kannski það sem ég var að segja, að það þarf að endurskoða þetta fyrirkomulag. Ég spurði gesti á nefndarfundunum: Ef við fengjum hina og þessa hópa, fyrirsvarsmenn samtaka, Öryrkjabandalagsins, samtaka eldri borgara og annarra, ef þau fengju einhverja fjármuni til að nýta þágu félagsmanna, hvernig myndu þau gera það? Myndu þau gera það með þessum hætti? Engum dettur þetta í hug vegna þess að þetta er allt of almenn aðgerð. Þetta er annars vegar einhver innborgun frá ríkinu til fólks sem finnur ekki fyrir því og svo er þetta hins vegar of lítið fyrir þá sem raunverulega standa illa í okkar samfélagi. Þannig mér finnst þurfa að endurskoða kerfið sjálft. Varðandi fjáraukalögin og fjármögnun þessara aðgerða þá er ég náttúrlega hvorki framsögumaður málsins né ber ég ábyrgð á þessum aðgerðum né fjármögnun þeirra þannig að það er að annarra svara fyrir það.