almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Ég tek undir það með hv. þingmanni að það er auðvitað ábyrgðarhluti að leggja fram svona mál, að mála það í þeim rósrauða bjarma að þetta sé einhvers konar jólagjöf í kristilegum kærleika, veitt til hinna verst stöddu, okkar minnstu bræðra þegar staðreyndin er sú að meiri hluti styrkþeganna er eignafólk sem á tugi milljóna í hreina eiginfjárstöðu, eins og kemur fram í gögnum frá Tryggingastofnun. Þess vegna hlýt ég líka að spyrja: Væri það ekki ábyrgðarhluti að veita slíku óábyrgu máli brautargengi hér á þingi?