almannatryggingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og ég nefni, eins og ég gerði í ræðu minni, að ég hef ekki litið á það sem hlutverk mitt að stöðva framgang þessa máls, heldur miklu frekar að varpa ljósi á það að þetta er ekki nægilega markviss nýting á almannafé. Hvort sem það er ráðuneytið sjálft, hæstv. ráðherra, við sem störfum hér inni, við getum gert þetta miklu betur en hér er gert. Þetta er það sem ég vildi benda á. Mér finnst nokkuð aðkallandi að endurskoða þetta kerfi, gera það þá markvissara, taka þetta inn, taka fjármuni í það að raunverulega bæta stöðu þess fólks sem þarf á því að halda. Ég á eftir að taka endanlega afstöðu til málsins, en ég geri frekar ráð fyrir því að sitja hjá við afgreiðslu þess.